Falleg tveggja herbergja íbúð á 4. hæð (efstu hæð) í fjölbýlishúsi við Gnoðarvog í Reykjavík.
* Mikið endurnýjuð eign
* Frábær staðsetning - fallegt útsýni til austurs, vesturs og norðurs.
* Góð fyrsta eign
* Vel viðhaldið húsNánari upplýsingar veita:
Árni B. Kristjánsson B.A í lögfræði / Lgf í síma nr 616-2694 arni@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is Nánari lýsing;
Gengið inní
forstofu sem tengir saman önnur rými íbúðarinnar.
Eldhúsið er á vinstri hönd með flísum á gólfi. Fallegt útsýni úr borðkróki. Fín eldri innrétting með bakaraofni og helluborði. Í eldhúsinu er pláss fyrir einfaldan ísskáp, uppþvottavél og þvottavél.
Stofan er björt með útgengi á
vestursvalir, parket á gólfi.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og góðu skápaplássi.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað, flísalagt með snyrtilegri innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Sérgeymsla í kjallara, 5,1 m².
Sameiginlegt þvotta-, þurrkherbergi og hjólageymsla í kjallara. Glæsilegt útsýni er úr öllum rýmum íbúðinnar.
Ástand fjölbýlishússins er gott en árið 2017 var farið í veigamiklar framkvæmdir á húsinu að utan (þak, gluggar, múrviðgerðir).Góð staðsetning á grónum og eftirsóttum stað. Stutt í almennar samgöngur, verslun og þjónustu.Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.