Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Tunguskógur 39 Ísafirði - Hóll - Stór og fallegur sumarbústaður, nefndur í Tunguskógi Ísafirði, góð staðsetning og stór lóð sem gefur frekari möguleika á uppbyggingu. Tilboð óskast - Í bústaðnum er eldhús og stofa, tvö herbergi, baðherbergi, þvottaaðstaða, á rislofti er góð svefnaðstaða.
Tungudalur er helsta útivistarsvæði Ísfirðinga, dalurinn er talinn vera miðstöð útivistar og ævintýra, en þar er að finna golfvöll, strandblakvöll, skíðasvæði, margar gönguleiðir og frábært tjaldsvæði.
Nánari lýsing:
Tröppur niður að húsi, aðalinngangur að framanverðu, þar er komið inn í forstofugang.
Við inngang er afstúkuð þvotta og geymsluaðstaða, tengi fyrir þvottavél.
Eldhús og stofa í opnu og björtu rými, mjög góð lofthæð. Eldhúsinnrétting er til bráðabirgða en býður upp á gott skápapláss, vaskur, helluborð og ofn. Viðarkamína til upphitunar í stofu.
Tvö svefnherbergi á hæðinni, minna herbergi með tveimur kojum og stærra hjónaherbergi með lausum fataskáp.
Baðherbergi með góðri sturtu og innréttingu.
Risloft/svefnloft, stigi úr gangi upp á risloft sem er skráð 32 m² að stærð, mjög gott svefnpláss, þrír gluggar á rishæðinni.
Útgengt út af gangi út á stóran sólpall sunnanmegin.
Stór garður með leiktækjum fyrir börn, hægt að setja upp heitan pott í garði/sólpalli.
Á lóðinni er 6,2 m² geymsluskúr á steyptum grunni, tilbúinn fyrir salerni.
Bústaðurinn sjálfur er skráður 72,1 m², samtals skráð stærð er 78,4 m².
Hægt er að keyra niður af vegi upp að bústaðnum og nýta bakgarð sem bílastæði.
Lóðin er skráð 1398 m² leigulóð.