Fasteignaleitin
Skráð 7. des. 2025

Arnarsmári 22

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
91.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
815.904 kr./m2
Fasteignamat
72.050.000 kr.
Brunabótamat
51.050.000 kr.
Mynd af Heiðar Friðjónsson
Heiðar Friðjónsson
Löggildur Fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2218269
Landnúmer
173566
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
ATH. eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun sem mun skýrast innan 14-daga.

***NÝTT Í SÖLU***  Arnarsmári 22, 201 Kópavogur
 er vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngangi í góðu 8 íbúða fjölbýlishúsi.
Um er að ræða 91,8 fermetra eign sem skiptist í 91,8 fermetra íbúðarrými og 5,7 fermetra geymslu í sameign sem ekki er hluti af fermetrum íbúðar.
Íbúðin samanstendur af forstofu, tveimur góðum svefnherbergjum, eldhúsi, stofu, borðstofu, baðherbergi og þvottahúsi. Góðar svalir í suður. Ný gólfefni eru á íbúðinni.

Opið hús miðvikudaginn 6. maí kl. 17.00 til 17.30, Heiðar verður á staðnum og sýnir eignina, s.693-3356, heidar@valholl.is


Eignin er skráð skv. fasteignaskrá HMS alls 91,8 fm.

Nánari lýsing
Forstofa: Gengið er inn í góða forstofu með góðum fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús: Snyrtileg eldhúsinnrétting og gott skápapláss. Tengi fyrir uppþvottavél. Ofn í vinnuhæð og góður borðkrókur við glugga. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð með útgengi á suður-svalir. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott og bjart með góðum fataskápum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Gott herbergi með fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús: Innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og ræstivaskur
Svalir: Góðar suðursvalir beint út frá stofu.
Geymsla: 5,7 fm sér geymsla í sameign. (Telur ekki í fermetrum íbúðar)
Lóðin: Snyrtileg og vel hirt lóð í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.

Eignin er mjög björt og staðsett á góðum og fjölskylduvænum stað í Smárahverfinu í Kópavogi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, útivist og alla helstu þjónustu og verslanir.
Allar frekari uppl. um eignina veitir Heiðar Friðjónsson Lögg. fast. í s.693-3356 eða á heidar@valholl.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/02/202465.600.000 kr.65.500.000 kr.91.8 m2713.507 kr.
02/03/201836.600.000 kr.43.000.000 kr.91.8 m2468.409 kr.
01/04/201526.450.000 kr.29.000.000 kr.91.8 m2315.904 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Birkiholt 6
Skoða eignina Birkiholt 6
Birkiholt 6
225 Garðabær
95.1 m2
Fjölbýlishús
312
767 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureitur A - íbúð 610
Orkureitur A - íbúð 610
108 Reykjavík
57.3 m2
Fjölbýlishús
211
1185 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Frostafold 32
Skoða eignina Frostafold 32
Frostafold 32
112 Reykjavík
80.5 m2
Fjölbýlishús
312
795 þ.kr./m2
64.000.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 40
Skoða eignina Drekavellir 40
Drekavellir 40
221 Hafnarfjörður
88.7 m2
Fjölbýlishús
211
761 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin