Fannagil 10.
Glæsilegt útsýnishús sem er rúmgott og bjart með stórum gluggum.
Húsið er 227,9m
2 fimm herbergja einbýlishús með innbyggðum bílskúr auk 18m
2 útigeymslu á góðum stað í Giljahverfi á Akureyri. Stór steypt verönd með heitum potti og steyptur stigi niður í garð.
Vandaðar sérsmíðaðar Innréttingar og innihurðir eru allar hnotuspónlagðar.
Gólfefni eru flísar og gegnheilt hnotuparket.
Borðplötur eru ljós steinn í eldhúsi, baðherbergjum og einnig í gluggasyllum.
Efri hæð: Forstofa, eldhús, stofa og borðstofa í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/inngangur, geymsla og bílskúr.
Neðri hæð: Tvö svefnherbergi, sjónvarpshol/vinnuaðstaða, baðherbergi og geymsla.
Forstofa: Flísar á gólfum og skápur hnotupónlagður.
Eldhús: Stór mjög falleg eldhúsinnrétting hnotuspónlögð innbyggð uppþvottavél, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp. Ofnar í vinnuhæð, gert er ráð fyrir kaffivél í innréttingu. Eyja er í eldhúsi þar eru góðar skúffur, eldavél er í eyju. Ljós steinn á borðum tveir gluggar á eldhúsi. Flísar á gólfi.
Borðstofa: Mjög björt og rúmgóð með stórum glugga með einstöku útsýni. Flísar á gólfi. Fallegar hillur með lýsingu við enda borðstofu.
Stofa: Björt og rúmgóð stórir gluggar og gott útsýni, flísar eru á gólfum og útgengi er út á steyptan pall. Stofa eldhús og borðstofa eru í opnu rými með góðri lofthæð.
Baðherbergi: Þar er sérsmíðuð innrétting sem er spónlögð með hnotuspón með ljósum stein á borðplötu, baðkar, sturta með gleri, innbyggð blöndunartæki, upphengt salerni. Opnanlegur gluggi er þar.
Svefnherbergi: Eru tvö með gegnheilu hnotuparketi á gólfum, skápar sem eru spónlagðir með hnotu í báðum herbergjum, gólfsíður gluggi í hjónaherbergi og tveir gluggar í hinu.
Þvottahús: Flísar á gólfum, hnotuspónlögð innrétting, með rými fyrir þvottavél og þurrkara. Mjög stór skápur er einnig í þvottahúsi sem er hnotuspónlagður. Inngangur er í þvottahús. Inn í íbúðina er rennihurð sem er hnotuspónlögð.
Bílskúr: Þar eru flísar á gólfum og aðeins uppá veggi, góðir gluggar, innfeld lýsing, rúmgóð vönduð innrétting eins og aðrar innréttingar í húsinu, sjálfvirkur hurðaopnari á bílskúrshurð.
Neðri hæð:Stigi milli hæða er með steyptum þrepum.
Baðherbergi: Rúmgóð innrétting sem er spónlögð með hnotuspón og sturta með sturtugleri. Flísar á gólfi og veggjum. Rennihurð er hnotuspónlögð.
Tvö svefnherbergi með gegnheilu hnotuparketi á gólfum og vönduðum fataskápum sem eru hnotuspónlagðir. Svalahurð með gleri er út úr öðru herberginu.
Hol: Er mjög rúmgott og bjart með flísum á gólfi.
Geymsla: Rúmgóð, er upphituð með stórri hurð.
Stór steypt verönd og steyptir veggir, hluti veggjanna eru viðarklæddir. Þar er heitur pottur með einstöku útsýni, hiti er í hluta verandar.
Hiti er í bílaplani og einnig búið að steypa stéttar og tröppur niður í garð.
Útigeymsla er undir veröndinni. Hún er rúmgóð með uppdraganlegri rennihurð.
- Einstaklega falleg eign í Giljahverfi sem er með möguleika á aukaíbúð.
- Hiti í gólfum.
- Mikil lofthæð er í íbúð á efri hæð.
- Stór verönd með heitum potti með vandaðri stýringu sem stýrt er með snertiskjá á baðherbergi.
- Hiti er í hluta á verönd.
- Hiti er í bílaplani.
- Frábært útsýni er úr eigninni.
- KNX stjórnkerfi er í húsinu fyrir ljós og hita.
- Innfeld lýsing er í öllu húsinu nema geymslum.
- Eignin er í einkasölu á FS fasteignir ehf.
Allar nánari upplýsingar:
Svala Jónsdóttir sími 663-5260 - svala@fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson sími 694-4220 - fridrik@fsfasteignir.is