***DOMUSNOVA KYNNIR * NÝLEG 2JA HERBERGJA ÍBÚÐ Í LYFTUHÚSI Á 4. HÆÐ MEÐ BÍLSKÝLI***FRÁBÆR FYRSTU KAUP*** OPIÐ HÚS VERÐUR LAUGARDAGINN 26. OKTÓBER KL. 16.00-16.30 - VERIÐ VELKOMIN - EIGNIN VERÐUR EKKI SÝND EÐA SELD FYRIR OPIÐ HÚS ***2ja herbergja íbúð merkt 0402 í húsinu nr. 14 við Dalbrekku í Kópavogi. Húsið er nýbygging frá GG verktökum frá 2018-2020.
Íbúðinni fylgir stæði í bílakjallara merkt íbúðinni svo og sérgeymsla merkt 0104 í kjallara hússins. Birt stærð íbúðar 64,7 fm., ásamt geymslu 3,5 fm. eða
samtals birt stærð séreignar 68,7 fm. Nánari lýsing:
Forstofa - innbyggður fataskápur frá GKS innréttingum.
Eldhús - er með innréttingu upp í loft frá GKS, gott skápapláss. Eldhúsi fylgir innbyggður ísskápur frá AEG, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn og spanhelluborð frá AEG.
Stofa - Björt og fín stofa með aðgengi út á svalir og tvær gluggahliðar.
Hjónaherbergi - rúmgott og fínt með góðum skápum upp í loft.
Baðherbergi - Flísalagt gólf og veggir, innrétting frá GKS, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Upphengt klósett.
Íbúðin er öll parketlögð með vönduðu ljósu Pergo harðparketi frá Egill Árnason. Að undanskyldu baði.
Íbúðinni fylgja upphengd ljós og dyrasími með myndavél.
Geymsla – Hátt til lofts og nýtist þar af leiðandi mjög vel.
Bílastæði merkt B-031. Búið er að setja upp innviði þannig hægt sé að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.
Svalir - búið er að fá samþykki fyrir svalalokun.
Hjólageymsla er aðgengileg við inngang stigahúss og er mjög rúmgóð. Þar er einnig aðstaða fyrir barnavagna.
Stutt er í ýmiskonar þjónustu:- Leikskóla og skóla
- Sundlaug Kópavogs
- Bókasafn Kópavogs
- Strætó, framtíðar skipulag Borgarlínu við Hamraborg
- Stutt í Fossvogsdal, þar sem eru fallegar gönguleiðir, frisbígolf ofl.
- Kópavogskirkja
- Bónus er í 1 mín göngufæri.
- Krónan Hamraborg
- Te og kaffi, Brauð og co, Dominos, American Style, Tokyo Sushi
og svo margt margt fleira!
FRÁBÆR STAÐSETNING MIÐSVÆÐIS Í KÓPAVOGINánari upplýsingar veita:Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Sæþór Ólafsson löggiltur fasteignasali / s.855-5550 / saethor@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.