Fasteignaleitin
Opið hús:12. nóv. kl 16:30-17:30
Skráð 8. nóv. 2026

Grettisgata 98

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
44.3 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
1.465.011 kr./m2
Fasteignamat
48.350.000 kr.
Brunabótamat
38.150.000 kr.
Byggt 1953
4. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2010423
Landnúmer
102993
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Þak
Þakjárn endurnýjað 2022
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali, og Betri Stofan fasteignasala kynna fallega, karakterríka og mikið uppgerða 2ja herbergja risíbúð að Grettisgötu 98, 105 Reykjavík. Íbúðin er á 4. hæð og er skráð 44,3 fm, en gólfflötur er mun stærri eða 76,3 fm samkvæmt teikningu arkitekts. Íbúðin býður upp á einstaklega fallegt, opið, rúmgott og bjart alrými með samliggjandi stofu og eldhúsi. Aukin lofthæð er í hluta rýmisins með fallegum viðarbitum í lofti. Útgengt er á svalir úr alrými. Svefnherbergi er rúmgott með innbyggðum fataskáp. Baðherbergi var nýlega endurnýjað á vandaðan og snyrtilegan máta með aðstöðu fyrir þvottavél. Salerni er snyrtilegt og í sérrými. Við inngang hefur verið útbúið svefnloft sem í dag er nýtt sem geymsla. Á stigagangi fyrir framan inngangshurð er sérgeymsla eignarinnar. Allt húsið fékk gott og umfangsmikið viðhald fyrir um 4–5 árum.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala, í síma 661-6021 eða á hreidar@betristofan.is.

Frábær staðsetning á rólegum stað í miðbæ Reykjavíkur. Öll helsta þjónusta, verslanir, kaffihús og veitingastaðir Laugavegar og miðbæjarins eru í þægilegu göngufæri. Stutt er í almenningssamgöngur, skóla á öllum námsstigum og helstu stofnanir.

Framkvæmdir undanfarinna ára:
2020: Geymslu í risi breytt í svefnloft; tenglum og lýsingu bætt við.
2021–2022: Umfangsmikið viðhald á öllu húsinu. Þak endurnýjað, skipt um flestalla glugga, bakhurðir endurnýjaðar, múrviðgerðir gerðar, þakkantur endursteyptur og þakniðurföll endurnýjuð.
2022: Breytingar þar sem þaksvölum var bætt við hjá þakkvisti.
2024: Nýjar rúður í tveimur gluggum og nýir gluggalistar í þakkvisti.
2024: Nýr slaufuloki settur við hitagrind og ofnakerfi yfirfarið.
2024: Rafmagn yfirfarið, skipt um rofa og tengla, nýtt efni sett í dósir og ný lok á loftdósir.
2024: Alrými heilmálað.
2025: Nýtt dyrasímakerfi sett upp.
2026: Skipt um gömlu rafmagnstöfluna og sett upp ný innfelld tafla.
2026: Baðherbergi/þvottahús endurnýjað: Gert upp frá grunni. Skipt út lögnum, flísalagt og málað. Sett upp ný sturta, innréttingar og rennihurð.

Nánari lýsing:
Forstofa / hol: Komið er inn í forstofu/hol sem tengir saman rými eignarinnar. Búið er að útbúa svefnloft við inngang sem nýtist ýmist sem auka svefnaðstaða eða geymsluloft.
Alrými: Hjarta íbúðarinnar er bjart, rúmgott og heillandi alrými með mikilli lofthæð upp í mæni og sýnilegum, hvítmáluðum sperrum/bitum með innfelldri lýsingu sem gefa rýminu mikinn svip. Rýmið sameinar stofu, borðstofu og eldhús í eina bjarta heild. Gengið er út á svalir úr alrými.
Stofa: Mjög rúmgóð, opin og björt með fjölmörgum þakgluggum sem hleypa mikilli dagsbirtu inn og skapa notalega stemningu. Hún tengist eldhúsi mjög vel.
Eldhús: Opið að hluta inn í stofu. Innréttingin er hvít og stílhrein með góðu skápaplássi ásamt praktískri eyju/hálfeyju með gegnheilli viðarborðplötu og setplássi fyrir barstóla. Innréttingin skartar innfelldum ofni, spanhelluborði, hvítum vaski og fallegum flísum milli skápa. Á gólfi eldhúss og borðkróks eru dökkgráar flísar sem mynda flotta andstæðu við parketið.
Baðherbergi / þvottahús: Endurnýjað á sérlega smekklegan og vandaðan hátt. Veggir eru klæddir fallegum, lóðréttum grænum flísum og á gólfi eru stórar ljósgráar flísar. Hornsturta með glerhurðum og stórum regnsturtuhaus. Vegleg innrétting úr ljósum við með góðum skúffum og hvítum vaski ásamt stórum, hringlaga spegli og handklæðaofni á vegg. Rýmið nýtist jafnframt sem þvottahús með sérsmíðaðri innréttingu, góðu geymslu- og vinnuplássi ásamt tengi og plássi fyrir þvottavél/þurrkara undir borðplötu. Stór þakgluggi veitir mikla dagsbirtu og góða loftun.
Salerni: Sér salerni með upphengdri skál, innbyggðum vatnskassa og krómuðum þrýstihnappi á vegg. Lítil og nett handlaug með krómuðu blöndunartæki. Veggir eru flísalagðir að hluta með ljósum flísum. Hagnýtur speglaskápur er fyrir ofan salerniskassa ásamt auka veggspegli við hlið handlaugar.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðum gólffleti og innbyggðum fataskáp.
Sérgeymsla: Staðsett á stigapalli við inngangshurð íbúðar.

Sameign: Sameiginlegt þvottahús er í kjallara.
Garður: Sameiginlegur, afgirtur og gróinn garður bak við hús.
Bílastæði: Næg bílastæði eru í götunni (gjaldskyld stæði). Íbúar eiga rétt á íbúakorti samkvæmt gildandi reglum borgarinnar.

Um er að ræða virkilega skemmtilega og fallega eign á frábærum stað í miðborginni þar sem öll þjónusta og verslun er í göngufæri. Stutt er í útivistarsvæði á borð við Klambratún, Öskjuhlíð og Hljómskálagarð, auk þess sem mikil uppbygging hefur átt sér stað við Hlemm og nærliggjandi svæði.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson, löggiltur fasteignasali, í síma 661-6021 eða gegnum netfangið hreidar@betristofan.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/05/202441.700.000 kr.58.000.000 kr.44.3 m21.309.255 kr.Já
09/09/201926.350.000 kr.30.400.000 kr.44.3 m2686.230 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala
https://www.betristofan.is

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Austurbrún 2
Opið hús:08. nóv. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Austurbrún 2
Austurbrún 2
104 Reykjavík
47,6 m2
Fjölbýlishús
211
1048 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Davíðshagi 12 íbúð 105
Davíðshagi 12 íbúð 105
600 Akureyri
48,4 m2
Fjölbýlishús
312
948 þ.kr./m2
45.900.000 kr.
Skoða eignina Bræðraborgarstígur 24
Bræðraborgarstígur 24
101 Reykjavík
80,7 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
513
1077 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 5 (420)
Bílskúr
Bílastæði
Fálkahlíð 5 (420)
102 Reykjavík
163,5 m2
Fjölbýlishús
413
856 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin