Beykiskógar 19, 300 Akranes Um er að ræða fjögurra hæða nýbyggingu með 11 íbúðum. Íbúðin er þriggja herbergja og staðsett á annarri hæð í lyftuhúsi. Eignin afhendist fullbúin með gólfefnum. Sérgeymsla, 5,2 m² að stærð, fylgir í sameign á fyrstu hæð.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 73.5 m², þar af er íbúðarrými 71,4 m² og sérgeymsla í kjallara hússins 2,1 m². Eign merkt 01-02, fastanúmer 251-9895 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Lýsing og skipulag eignar: Forstofa er með fataskáp. Eldhús er með vandaðri innréttingu með mjúklokum á skúffum og hurðum ásamt innfeldum ísskáp og uppþvotavél. Stofa er björt og útgengt út á svalir. Tvö svefnherbergi, bæði með fataskápum. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu. Innan baðherbergis er aðstaða fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Tvær geymslur, önnur er 2,0m² að stærð og staðsett innan íbúðar og hin er 2,1 m² og er staðsett á jarðhæð hússins.
Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á fyrstu hæð. Póstkassar eru staðsettir við anddýri. Stigagangur er með teppum og lyfta er í húsinu.
Byggingarlýsing: Húsið er staðsteypt, einangrað með steinull og klætt með báruáli, nema jarðhæð er klædd með sléttu áli. Í íbúðunum er ofnakerfi. Forhitari er á heitu neysluvatni. Gluggar eru ál-trégluggar og hurðar eru ál að utan og tré að innan. Þak er uppstólað valmaþak, klætt með lituðu áli og einangrað ofan á plötu.
Lóð og aðkoma: Lóð verður fullfrágengin samkvæmt samþykktum teikningum. Hellulögð stéttar verða með snjóbræðslukerfi fyrir framan aðalinngang. Malbikuð bílastæði verða 19 talsins, þar af eru 5 stæði með ídráttarrörum að tengibrunni fyrir mögulega rafbílahleðslu. Að öðru leyti verður lóðin tyrfð eða með náttúrulegum móa.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.