Domusnova og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynna: Mikið endurnýjaða og björt 88,2 fm 3herbergja íbúð á annarri hæð ásamt suður svölum á frábærum stað á Akranesi. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, hjónaherbergi, barnaherbergi, stórt baðherbergi með þvottaaðstöðu og suður svölum. Auk þess er um 6 fm geymsla í sameign. Stór sameiginlegur garður umlykur húsið.
Nánari lýsing:
Forstofa: Parketlögð með stórum fataskáp og fatahengi.
Svefnherbergi I: Rúmgott með fataskáp, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Stórt og rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: flísar á gólfi og flísaþyljur á 2 veggjum og dúkur í lofti. Sturta, og góð innrétting. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa: Rúmgóð og björt, gengið út á flísalagðar svalir, eldhús í sama rými.
Eldhús:hvít innrétting með beiki,
6fm Sérgeymsla í sameign ekki í skráðum fermetrum íbúðar.
Endurnýjað 2023: Baðherbergið var allt endurnýjað auk neysluvatnslagna innan íbúðar, fljótandi parket á allri íbúðinni (nema baðherbergi), nýjar innihurðir og skápar.
Sameign:
Hleðslustöðvar (nýlega sett upp)
Vagna- og hjólageymsla. Aðgengi úr Vagna- og hjólageymslu í garð.
Salernisaðstaða.
Tengi fyrir þvottavél í sameiginlegu þvottahúsi
Fallegur garður
Seljandi greiðir fyrir fyrsta áfanga framkæmdar húsfélagsins.
Nánari upplýsingar veita:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali ragga@domusnova.is / sími 861-4644
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.