Nýtt á skrá! Opið hús - Hverafold 64 Reykjavík - sunnudaginn 6. júlí klukkan 16:00 - 16:30
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir fallegt, bjart og vel skipulagt 141,9 fermetra einbýlishús við Hverafold 64 í Reykjavík. Eignin skiptist í 108,9 fermetra íbúðarrými og 33,0 fermetra bílskúr sem er með baðherbergi inn af og því hægt að nýta bílskúr sem útleigueiningu. Útgengi úr stofu á sólríka verönd til suðvesturs sem er afgirt að hluta. Falleg heimreið að húsi sem er hellulögð. Góður tyrfður garður með fallegum trjágróðri. Húsið sjálft og þak var málað árið 2024.
Eignin skiptist í: Forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Bílskúr er rúmgóður með geymslu við bílskúrshurð og inngangshurð sem leiðir inn í herbergi með glugga og baðherbergi inn af herbergi.
Staðsetning eignarinnar er afar góð í lokuðum botnlanga á eftirsóknaverðum stað við Hverafold þaðan sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, íþróttasvæði auk verslunar og þjónustu. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni. Virkilega skjólsætt er á þessari staðsetningu í Grafarvogi og stutt í afar falleg útivistarsvæði við Voginn.
Nánari lýsing: Forstofa: Með flísum á gólfi og fatahengi. Stofa: Er rúmgóð, með parketi á gólfi og gluggum til suðurs og vesturs. Stofa rúmar setustofu og borðstofu. Útgengi á baklóð/verönd frá stofu. Verönd: Er hellulögð og afgirt að hluta. Við tekur falleg tyrfð lóð með gróðri á lóðarmörkum. Eldhús: Með parketi á gólfi og viðar eldhúsinnréttingu. Eldavél með keramik helluborði, gluggum til austurs og góðum borðkrók. Þvottaherbergi: Er rúmgott með flísum á gólfi. Þvottaherbergi er staðsett inn af eldhúsi og með útgengi á framlóð. Gluggar til suðurs. Hjónaherbergi: Með parketi á gólfi, góðum skápum og glugga til vesturs. Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til vesturs. Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs. Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum og flísalögð sturta (þarf að endurnýja). Innrétting við vask, salerni og gluggi til austurs.
Bílskúr: Er 33,0 fermetrar að stærð. Plastparket á hluta þar sem inngangshurð er inn í herbergi og baðherbergi. Gluggi til norðurs. Baðherbergi með flísum á gólfi, sturtuklefa, upphengdu salerni, vaski og handklæðaofni. Væri hægt að koma fyrir litlum eldhúskróki við hlið baðherbergis. Geymsa: Er staðsettur í hluta bílskúrs þar sem bílskúrshurð er. Málað gólf, vinnuborð og hillur.
Allar nánari upplýsingar veitir: Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.