Fasteignaleitin
Skráð 5. nóv. 2025

Asparskógar 18 - íbúð 403

Nýbygging • FjölbýlishúsVesturland/Akranes-300
167.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
69.800.000 kr.
Mynd af Bergþóra Lárusdóttir
Bergþóra Lárusdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
2519891
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
x2 - 30,8 fm. & 25,9 fm.
Lóð
5,37
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Stórglæsileg Penthouse horníbúð á tveimur hæðum, 4.-5. hæð (efstu) í vandaðri nýbyggingu í rólegu hverfi á Akranesi. Stórbrotið útsýni til allra átta, Akrafjallið, yfir á Reykjanes, Faxaflóa og allt vestur til Snæfellsjökuls á heiðskírum degi.

Hafi kaupandi áhuga á að hafa áhrif á val innréttinga og/eða gólfefna hefur hann hér tækifæri til þess. 

*** BÓKIÐ SKOÐUN ***
Bergþóra Lárusdóttir löggiltur fasteignasali / s.8953868 / bergthora@domusnova.is
Sjöfn Hilmarsdóttir, lgf., s. 6914591 // sjofn@domusnova.is


Domusnova Borgarnesi hefur til sölu 2ja - 5 herbergja íbúðir við Asparskóga 18 á Akranesi. Þriðji og síðasti hluti byggingar er nú kominn í sölu og eru tilbúnar til afhendingar 14 glæsilegar eignir, stærðir frá 56,8 - 130,1 fm. Auk þess sem er komin í sölu Penthouse íbúðin, stærð 167,7 fm.

Asparskógar 18 er virkilega vandað og vel skipulagt 40 íbúða fjöleignarhús á 2-5 hæðum. Húsið er byggt upp með forsteyptum einingum, einangrað og klætt að utan með ál- og timburklæðningu. Þak er steinsteypt með ásoðnum tjörupappa, einangrað og með PVC dúk. Lyftur eru í tveimur opnum stigahúsum, bílastæði og sérgeymslur er í kjallara hússins sem fylgir völdum eignum hússins. Innan lóðar eru 32 bílastæði og þar af eru 14 hleðslustæði. Íbúðir skilast fullbúnar að innan með vönduðum innréttingum ásamt gólfefnum. Ljós eru innbyggð að hluta. 
 
Ýtið hér til að skoða og sjá nánar um eignir: Heimasíða - Asparskogar.is
Ýtið hér til að skoða skilalýsingu eigna: Skilalýsing - Asparskógar 18
Húsbyggjandi: Ferrum fasteignafélag 
Aðalhönnuður: Al-Hönnun ehf.

Íbúð 403 er á tveimur hæðum, stærð íbúðar 167,7 fm., þar af geymsla 8,0 fm. Sérinngangur er inn í eignina á móts við lyftu eða í gegnum stigahús. Tvennar þaksvalir, á 1. hæð íbúðar (4 hæð) eru 30,8 fm. L-laga svalir sem snúa í austur- og suðvestur. Á 2. hæð eignar (fimmtu hæð), eru 25,9 fm. þaksvalir í suðvesturátt. Sérgeymsla eignar er í kjallara, stærð 8,0 fm. Stúkuð af með möskaveggjum frá Rými Ofnasmiðjunni ehf. Gólf er lakkað. Merkt bílastæði í bílakjallara fylgir eigninni.
Á fyrstu hæð eignar (124,4 fm.) er anddyri, gangur, alrými (eldhús, borðstofa og setustofa), tvö herbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og stigahol. Útgengt frá alrými á L-laga 30,8 fm. svalir í austur - og suðvesturátt.
Á efri hæð eignar (35,3 fm.) Hjónasvíta: Gengið inn um hurð frá stigapalli. Fal­leg­ir og stór­ir glugg­ar með útsýni til norðurs og aust­urs gefa rým­inu sjarma og hleypa mik­illi birtu inn. Fatarými innan herbergis er 5,3 fm. Sérbaðherbergi inn af herbergi.Þaksvalir 25,9 fm. í suðvesturátt og gert ráð fyrir heitum potti (lagnir). 

* 4ra herbergja íbúð á 4-5. (efstu) hæð með sérinngang 
* Stærð 167,7 fm., þar af 8,0 fm. sérgeymsla í kjallara
* Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla
* Bílastæði, merkt B-06 í bílakjallara 



Bílageymsla: er í kjallara hússins. Aðkoma bifreiða um akstursramp, aðkoma gangandi frá sitthvorum enda stigahúss og um gönguhurð við ramp. Bílageymslan er upphituð með lágu hitastigi/frostlaus. Vélræn loftræstingu og sjálfvirkt springler kerfi. Sjálfvirkur hurðaropnari er á hurð. Ein fjarstýring fylgir hverju bílastæði. LED lýsing í lofti
Sameign: Á 1. hæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Rafmagnstöflur og rafmagnsmælar íbúða er staðsett í sameigninni.
Lóð/bílastæði: Lóðin er 3325,0 fm. Innan lóðar eru 32 bílastæði, þar af eru 14 sérmerkt f. rafmagnsbíla og 3 fyrir hreyfihamlaða. Lóðin verður afhent fullbúin í lok byggingartímans. Bílastæði við götu eru malbikuð. Tengibúnaður (ídráttarrör) vegna hleðslu rafbíla er aðgengilegt við bílastæði. Milli húss og bílastæða við götu eru hellulagðar stéttar.

Annað: Ljósleiðari er tengdur inn í húsið og endar í tengikassa hverrar íbúðar. Netdreifikerfi er í íbúðinni. Ljósbreytir við tengikassa kemur frá símafélagi íbúans.
Sorpgeymslur eru niðurfelldar á lóð (djúpgámar).

EIGNIN ER EKKI TILBÚIN OG GETUR KAUPANDI HAFT ÁHRIF Á VAL INNRÉTTINGA OG GÓLFEFNA. 
*Myndir eru úr annarri eign*


Nánari upplýsingar veita:
Bergþóra Lárusdóttir löggiltur fasteignasali / s.8953868 / bergthora@domusnova.is
Sjöfn Hilmarsdóttir, löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / sjofn@domusnova.is
Skrifstofa Domusnova / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2023
Fasteignanúmer
2519891
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
B-
Númer eignar
06
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Geislaskarð 2
3D Sýn
Skoða eignina Geislaskarð 2
Geislaskarð 2
221 Hafnarfjörður
108 m2
Fjölbýlishús
413
727 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin