VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu parhús við Heiðarbrún 86, 810 Hveragerði.
Eignin er samtals 91,2 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Íbúðin telur eldhús, tvö svefnherbergi, stofu/borðstofu og baðherbergi. Þvottahús/geymsla er inn af eldhúsi.
Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem leik- og grunnskóla, verslun og þjónustu.
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.Sjá staðsetningu hér:Lýsing eignar:Forstofa: er flísalögð, þar er fatahengi.
Eldhús: með eldri innréttingu sem hefur verið filmuð. Efri og neðri skápar og skúffur, eldavél, bakarofn og vifta. Flísar á gólfi. Frá eldhúsi er gengið inn í þvottahús og inn af því er geymsla.
Baðherbergi: er nýlega uppgert. Þar er innrétting með handlaug, upphengt wc, baðkar og handklæðaofn.
Stofa/borðstofa: saman í opnu rými með hurð út á nýlega timurverönd. Garður er lokaður með gróðri og girðingu.
Hjónaherbergi: með tvöföldum fataskáp og glugga til suðurs út í garð. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: með tvöföldum fataskáp og glugga til norðurs. Parket á gólfi.
Þvottahús/geymsla: gengið er inn í þvottahús frá eldhúsi. Þar er gert ráð fyrir þvottavél og þurkara, einnig er þar skolvaskur.
Rúmgóð geymsla með hillum er inn af þvottahúsi.
Háaloft: er yfir eigninni og búið er að leggja gólf á hluta þess og nýta sem geymslu.
Gólfefni:
Flísar á anddyri, eldhúsi og baðherbergi.
Dúkur á þvottahúsi.
Parket á stofu, borðstofu og herbergjum.
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.