BYR fasteignasala kynnir í einkasölu LANGAHRAUN 13 ÍBÚÐ 202, í Hveragerði. Fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð með sérinngangi í nýju hverfi sem kallast Kambaland. Smellið hér fyrir staðsetningu. Stærð íbúðar samkvæmt skráningu HMS er samtals 98.2 m², sem skiptist í íbúð 91.5 m² og geymslu á fyrstu hæð 6.7 m².
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, fataherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Í sameign er sérgeymsla.
LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING. **Eignin verður fyrst sýnd á opnu húsi. Tekið er á móti tilboðum daginn eftir opið hús** Bókaðu þig á opið hús | byr@byrfasteignasala.is | s. 483-5800**Nánari lýsing: Anddyri með fataskáp.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er frá stofu út á suðursvalir með útsýni yfir Ölfusið.
Eldhús með keramik helluborði, ofni, stálvaskur og blöndurnartæki með handúðara.
Hjónaherbergi með fataherbergi er innaf.
Barnaherbergin eru tvö, bæði með fataskáp.
Baðherbergi með innréttingu, handlaug og blöndunartæki ofan á borði, vegghengt salerni, sturta og handklæðaofn.
Tenging fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi.
Geymsla er í sameign á jarðhæð, ásamt sameiginlegri geymslu/inntaksrými.
Gólfefni: Harðparket er á gólfum alrýmis og svefnherbergja. Gólf baðherbergis er flísalagt.
Allar hurðar eru yfirfelldar og hvítar að lit frá Birgisson. Vélræn loftræsting (útsog) er frá eldhúsi og baðherbergi.
Húsið er byggt úr forsteyptum samlokueiningum, útveggir eru ljósgráir að lit. Burðarvirki þaks eru forsteyptar holplötur með þakdúk, þak er einhalla. Framan við hús er hellulögð gönguleið.
11 bílastæði eru í sameign á lóð þar af eitt sér merkt stæði fyrir hreyfihamlaða. Lóðin er 1186,2 m² leigulóð í eigu Hveragerðisbæjar.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS.
Fasteignanúmer: 251-5907.
Stærð: Íbúð 91.5 m². Geymsla 6.7 m². Samtals 98.2 m². Svalir 9.5 m².
Brunabótamat: 53.800.000 kr.
Fasteignamat: 55.900.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat ársins 2025 er 59.800.000 kr.
Byggingarár: 2022.
Byggingarefni: Steypa.