Gimli fasteignasala og Ólafur Björn Blöndal löggiltur fasteignasali kynna: ENGIHJALLI 9 - 3JA - 4RA HERB.89,2 FM ÍBÚÐ Á 6. HÆÐ - TVENNAR SVALIR. Um er að er að ræða mjög mikið endurnýjaða íbúð til suðvesturs með einstöku útsýni. Nýtt eldhús, ný gólfefni, endurnýjuð tæki og fl.
Stórar svalir, frábært skipulag. Verið er að leggja síðustu hönd á utanhússviðhald, endurnýjun svalahandriða og fl. sem greitt verður af seljanda.
NÁNARI LÝSING:Gangur/hol með parketi og skápum.
Baðherbergið er rúmgott, baðkar, innrétting, flísalagt, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stórt hol í miðju íbúðar sem nýtist sem sjónvarpsstofa eða borðstofa, parket á gólfum.
Stofan er björt og snýr til norðvesturs með svölum og fallegu útsýni, parket á gólfum.
Eldhús með nýrri hvítlakkaðri innréttingu og ný tæki, eyja og parket á gólfi.
Tvö rúmgóð barnaherbergi með parketi og skápum. Annað herbergið er útbúið eftir á og kemur sú breyting mjög vel út.
Hjónaherbergi með parketi og skápum, útgengt út á suðvestursvalir með fallegu útsýni.
Þvottahús er á hæðinni og sérgeymsla í kjallara.
Niðurlag:Eignin Engihjalli 9 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 205-9958, birt stærð 89.2 fm. Nánar tiltekið eign merkt 06-06, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur olafur@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta.
Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isHeimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.