Gimli fasteignasala kynnir: Bjarta og fallega 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og hellulagðri verönd í Álalækur 5-7 á Selfossi.
Um er að ræða nýlegt viðhaldslétt fjölbýlishús, byggt 2020.
Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: 89.4 fm. og skiptist eignin í forstofu, hol, eldhús/borðstofu/stofu í alrými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottahúsi inn af og geymslu.
Innréttingar og skápar eru sérsmíðuð frá Fanntófell. Eldhús-og baðinnréttingar eru í fallegum lit sem nefnist Gladstone Oak og borðplata er marmaralíki. Fataskápar og þvottahúsinnrétting eru hvít og hvítar innihurðar.
Gólfefni eru þýskt Kronotex harðparket í Atlas Oak Beige frá Birgisson.
Á baði og í forstofu eru ítalskar Rondine flísar frá Birgisson í Volcano Dark.Nánari upplýsingar veitir: Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða
gimli@gimli.isNÁNARI LÝSING:Forstofa: er flísalögð.
Hol: er með parket á gólfi.
Eldhús/borðstofa/stofa: í opnu rými með parket á gólfi, útg. frá stofu útgengi á hellulagða verönd/sérafnotareit.
Eldhús: er með fallegri viðarinnréttingu og hvítum efri skápum, eyju/tanga með helluborði sem hægt er að sitja við, innfelldri uppþvottvél, háfi, og bakaraofni í vinnuhæð. Stofan er rúmgóð og útgengi er út á hellulagða verönd sem er sérafnotaréttur.
Hjónaherbergi: er rúmgott með parket á gólfi og hvítum fataskáp.
Svefnherbergi #2: er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi #3: er með parketi á gólfi.
Baðherbergi: er flísalagt að hluta með walk in sturtu, innréttingu með vaski og handklæðaofn, vegghengt salerni.
Þvottahús: er inn af baðherbergi með góðri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Sérgeymsla: er í sameign ásamt sameiginlegri hjólageymslu.
Niðurlag:
Vel skipulögð íbúð á jarðhæð með sérinngangi í viðhaldsléttu fjölbýlishúsi, í vinsælu hverfi. Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta.
Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isHeimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala