SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *BJÖRT PENTHOUSE MEÐ SJÁVARÚTSÝNI *FRÁBÆR STAÐSETNING Í GÖNGUFÆRI VIÐ STRÖND, VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI* *
SNÝR Í SUÐUR*
Björt og falleg penthouse íbúð með þaksvölum, frábær staðsetning í Punta Prima. Fjölmargir góðir veitingastaðir í örstuttu göngufæri og stutt á ströndina. Ca. 40 mín akstur frá Alicante flugvelli og stutt frá La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinna. Góður sameiginlegur sundlaugargarður. Einstakt tækifæri til að eignast vel staðsetta og flotta íbúð á fínu verði í frábæru og grónu umhverfi.
Allar upplýsingar gefur:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, 0034 615 112 869
Nánari lýsing:Um er að ræða 61 fm penthouse íbúð í endahúsi með suðursvölum og 26 fm þaksvölum. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og einu baðherbergi, endurnýjuðu að hluta, þ.e. með nýlegri sturtu, innréttingu og blöndunartækjum. Gengið er inn í góða stofu/borðstofu, þar inn af er snyrtilegt eldhús. Inn af eldhúsi er geymsla/þvottahús með innréttingu. Íbúðinni fylgja einka þaksvalir með pergólu og frábæru útsýni til sjávar.
VINSÆL STAÐSETNING OG EIGNIN MJÖG HENTUG SEM ORLOFSÍBÚÐ, FRAMTÍÐARHEIMILI EÐA TIL ÚTLEIGU.
Íbúðin selst með húsgögnum og heimilistækjum.
Falleg hvít sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í göngufæri (1 km fjarlægð) og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir. Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri, Alicante flugvöllur er í ca. 40 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 10 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast fallega íbúð á frábærum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.
Verð 196.100 Evrur + kostn. (27.100.000 ISK + kostn. 1Evra=138ISK)Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
http://www.spanareignir.isMögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.
Kostnaður við kaupin: 9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.
Eiginleikar: útsýni, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, húsgögn, strönd, staðetning,
Svæði: Costa Blanca, Punta Prima,