Nýtt á skrá! Reynimelur 82 Reykjavík - Bókið skoðunLind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir 73,6 fermetra 3ja herbergja íbúð á 1. hæð með (gengið upp hálfa hæð) við Reynimel 82 í Reykjavík. Húsið lítur vel út að utan og fór húsfélagið í miklar viðhaldsframkvæmdir árið 2021 á ytra byrði hússins. Búið er að klæða allt húsið árið 2021 með álklæðningu. Sama ár voru gluggar yfirfarnir og skipt um þá glugga sem voru komnir á tíma. Skólplagnir var fóðrað á árunum 2017-2018. Rúmgóð stofa með gluggum til suðvesturs.
Um er að ræða frábæra staðsetningu við Reynimel í Reykjavík þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu. Fallegar göngu- og hjólaleiðir við sjóinn. Íþróttasvæði og sundlaug í næsta nágrenni. Leikskóli og grunnskóli í göngufjarlægð. Eftirsóttur staður í Vesturbænum.
Nánari lýsing:Forstofa: Með parketi á gólfi og fatahengi.
Stofa: Er rúmgóð og með parketi á gólfi. Rúmar vel setustofu og borðstofu. Stórir gluggar til suðvesturs. Útgengi á svalir.
Svalir: Eru rúmgóðar og snúa til suðvesturs inn í bakgarð hússins.
Eldhús: Með parketi á gólfi og fallegri nýlegri eldhúsinnréttingu. Stál bakaraofn, span helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggu til suðvesturs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og á veggjum. Baðkar með sturtutækjum og glerþili. Salerni, skápar og vaskur.
Svefnherbergi I: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðvesturs.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi og glugga til suðvesturs.
Geymsla: Er staðsett í kjallara. Málað gólf og hillur.
Sameiginlegt þvottaherbergi: Er rúmgott og snyrtilegt. Vélar í eigu húsfélagsins. Þvottasnúrur, vinnuborð og vaskur. Gluggar til suðvesturs.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla: Með máluðu gólfi, glugga til norðurs og útgengi á framlóð.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is