Fasteignaleitin
Skráð 16. júní 2026

Aðalstræti 57

EinbýlishúsVestfirðir/Patreksfjörður-450
351.4 m2
10 Herb.
7 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
227.376 kr./m2
Fasteignamat
67.100.000 kr.
Brunabótamat
153.300.000 kr.
Mynd af Steinunn Sigmundsdóttir
Steinunn Sigmundsdóttir
Fasteignasali
Garður
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2123695
Landnúmer
139978
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Sagt í lagi
Frárennslislagnir
Sagt í lagi
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Þarfnast málunar
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
0
Upphitun
Fjarvarmi
Inngangur
Tveir inngangar
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Múrklæðning ekki í góðu standi, hún er víða sprungin og þarf að fara að huga að gera við hana. Komið er að því að mála og skipta út gleri á þónokkrum stöðum. Einnig þarf að fara að mála þak. Útitrappa er illa farin og þarf að lagfæra hana um leið og farið verður í lagfæringu á múrklæðningu. Nýlega er búið að koma fyrir drenlögnum. Við húsið var byggður tvöfaldur bílskúr 2016-17 og á eftir að ganga frá handriði ofan á hann. Gott væri að flota gólf í bílskúr til að fá réttan vatnshalla. Ekki er búið að ganga endanlega frá lóð og bílaplani við bílskúr eftir að hann var byggður og þarf því að fara í þá framkvæmd fljótlega. 
 
Gallar
Árið 2018 var svefnherbergi á annarri hæð lagfært vegna leka og myglu við glugga og svalahurð. Skipt var um svalahurð og útveggir þéttir. Á sama tíma var skipt um gólfefni og fataskápa.
Niðurstöður rakamælinga: Mældum raka í kjallaragólfi undir stiga og tæknirými. Komast þarf fyrir raka í kjallara. Rakin tengist sennilega drenvandamál í lóð v. varnagarðs.
Klósetthnappur á gestabaði er laus.
 
Prestbústaðurinn við Aðalstræti 57 á Patreksfirði.

Hér er um að ræða sérlega virðulegt og fallegt fjölskylduhús á 3 hæðum ásamt nýlegum tvöföldum bílskúr. Húsið sjálft er skráð 295,2 fm og bílskúrinn er 56,2 fm. Samtals eru þetta 351,4 fm.

Húsið er steinsteypt, kjallari og tvær hæðir, einangrað að innan. Húsið hefur verið einangrað og múrklætt að utan. Að innan er húsið í nokkuð góðu standi. Skipt var um eldhús 2016 og það er í góðu standi. 

* Óskert útsýni er út á fjörð 
*  5 Svefnherbergi eru á efstu hæð hússins, að auki er forstofu herbergi á aðal hæð.
* Sérlega rúmgóð stofa og endurnýjað eldhús
* Neysluvatn var endurnýjað á sama tíma og eldhúsið
* Bílskúrinn var byggður árið 2016-17 hann er steyptur, með tveimur innkeyrsluhurðum, gólfhiti og skolvaskur
* Möguleiki er að útbúa sér íbúð í kjallar hússins


Lýsing á eign;
gengið er inn í litla forstofu, flísar eru á gólfi.
Á hægri hönd þegar að inn er komið er gestasnyrting með upphengdu salerni, innréttingu með vask og fallegur spegill með led borða. Forstofuskápur er á móti saleni.
Á hægri hönd er forstofuherbergi / Sjónvarpshol, opið er á milli þess herbergis og stofunnar.
Stofan er opin og björt, óskert útsýni er út á fjörðinn frá stofu, fallegir gluggar setja svip sinn á eignina. Parket er á stofu, gangi og í forstofuherbergi. Opið er að hlut á milli stofu og eldhúss.
Eldhúsið var endurnýjað árið 2016, falleg eikar innrétting með nægu skápaplássi, tvöfaldur ísskápur er í innréttingu. Eyja með helluborði og veglegur háfur. Flísar eru á gólfi.
Fallegur stigi með teppi gólfi er upp á efri hæð hússins, stór gluggi er í stigaopinu. 
Þegar að upp er komið eru þar 5 svefnherbergi, Hjónaherbergi er sérlega rúmgott með parket á gólfi og skápum á 2 veggjum og útgengt út á svalir.
4 barnaherbergi, öll með parket á gólfi og skápur í 3 af 4.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með baðkari með gler sturtu aðstöðu, innrétting með vask og upphengt salerni.
Kjallarinn er mjög rúmmgóður, þar er stór geymsla, stórt þvottahús og tvöföld skrifstofa ásamt lagnarými. Sér inngangur er á baklóð hússins þannig að hægt er að hafa sér innagang í kjallarann.

Stór garður er fyrir framan húsið og búið er að loka garðinum með grinverki, lokafrágang vantar fyrir framan eftir að bílskúrinn var byggður.
Húsið er kynnt með vatnsofnum með heitu vatni frá fjarvarmaveitu bæjarins. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2020
56.2 m2
Fasteignanúmer
2123695
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
26.750.000 kr.

Myndir (59)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringbraut 73
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Hringbraut 73
Hringbraut 73
101 Reykjavík
110.3 m2
Fjölbýlishús
413
806 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Skoða eignina Stakkholt 2b (íbúð 302)
Viðar_vefur.jpeg
Stakkholt 2b (íbúð 302)
105 Reykjavík
96.8 m2
Fjölbýlishús
312
845 þ.kr./m2
81.800.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 31 Íb 403 Hlutdlán
Bílastæði
Hringhamar 31 Íb 403 Hlutdlán
221 Hafnarfjörður
79.6 m2
Fjölbýlishús
312
866 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Kaldakinn 25
Skoða eignina Kaldakinn 25
Kaldakinn 25
220 Hafnarfjörður
93.1 m2
Fjölbýlishús
412
751 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin