BYR fasteignasala kynnir í einkasölu BLÁSALIR 22 ÍBÚÐ 1103, 201 Kópavogur. Tveggja herbergja íbúð á 11 hæð í lyftuhúsi ásamt bílastæði í lokaðri bílageymslu. Vel staðsett eign í vinsælu hverfi í Kópavogi.
Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er staðsteypt 12 hæðir auk kjallara. Eignin skiptist í Íbúð 71,1 m², geymsla 7 m², samtals 78.1 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, stofa og borðstofa, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, gangur og þvottahús. Í sameign sér geymsla og bílastæði í bílgeymslu.
Nánari lýsing: Anddyri með tvöföldum fataskáp.
Gangur liggur frá anddyri að öðrum rýmum eignarinnar.
Stofa og borðstofa, útgengt er út á svalir 6,8 m² úr alrými
Eldhús, Gorenje ofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, Bosch uppþvottavél getur mögulega fylgt.
Hjónaherbergi er með þreföldum fataskáp.
Baðherbergi, flísar á veggjum, sturta, salerni og vaskinnrétting.
Þvottahús er innan íbúðar.
Sér geymsla er í kjallara 7 m² að stærð.
Bílastæði í bílakjallara, innangengt er i bílakjallara. Þvottaaðstaða er í bílakjallara. Möguleiki er á uppsetningu bílhleðslustöðvar við bílastæði.
Gólfefni: Harðparket er á alrými, gangi og svefnherbergi. Flísar á anddyri og eldhúsi. Dúkur á baðherbergi.
Blásalir 22 er steypt hús, 13 hæðir, kjallari og 12 hæðir með 46 íbúðum. 2 íbúðir eru á fyrstu hæð og 4 íbúðir á hverri hæð 2-12 hæðar.
Geymslur fyrir íbúðir eru í kjallara og að hluta á 1.hæð.Bílastæði í bílageymsluhúsi eru séreign íbúða. Lóðin er fullfrágengin, þökulögð, bílastæði á lóðinni eru sameiginleg.
Lóðin er sameiginleg 9388,0 m² leigulóð í eigu Kópavogsbæjar.
Skráning eignarinnar hjá HMS:
Fastanúmer 224-8861.Stærð: Íbúð 78.1 m². Geymsla 7 m². Samtals 78.1 m².
Brunabótamat: 45.280.000 kr.
Fasteignamat: 63.800.000 kr. Fasteignamat 2025: 63.450.000 kr
Byggingarár: 2002.
Byggingarefni: Steypa.
Stæði í bílageymslu 03B37 0.0 m².