Nýtt í sölu! Opið hús - Hafnarbraut 14b Kópavogi - mánudaginn 23. september kl. 17:30-18:00
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilega og vel skipulagða 2ja herbergja 67,4 fermetra íbúð á 1. hæð í nýlegu fjölbýli með lyftu við Hafnarbraut 14b í Kópavogi. Íbúðin er með sér bílastæði bílakjallara og stórum svölum með svalalokun sem hægt er að ganga út á bæði frá svefnherbergi og stofu. Sér þvottaherbergi er innan íbúðar með innréttingum ásamt geymslu þar fyrir innan. Vandaðar og fallegar innréttingar sem ná upp í loft.
Húsið er afar fallegt byggt árið 2021 af ÁF Húsum ehf. og er viðhaldslítið með fallega frágenginni lóð. Loftræstikerfi er í húsinu og vélræn útloftun í votrýmum og geymslu. Sameiginleg stæði fyrir framan hús.
Um er að ræða eftirsótta staðsetningu á Kársnesi í Kópavogi.
Nánari lýsing eignar:Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Alrými samanstendur af stofu og eldhúsi.Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu með skápum upp í loft. Electroulux bakaraofn, spansuðu helluborð og vifta. Innbyggður kæliskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél.
Stofa: Með harðparketi á gólfi. Stofa rúmar setustofu og borðstofu. Opin að hluta við eldhús og útgengi á svalir.
Svalir: Með svalalokun og viðargólfi.
Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi og góðum skápum á heilan vegg sem ná upp í loft. Útgengi á svalir frá svefnherbergi.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Falleg innrétting við vask og speglaskápur fyrir ofan með lýsingu undir. Upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun.
Þvottaherbergi: Flísar á gólfi. Innrétting utan um þvottavél/þurrkara, gott skápapláss og vaskur.
Geymsla: Er staðsett inn af þvottaherbergi. Flísar á gólfi.
Bílastæði: Er staðsett í bílakjallara. Vel staðsett.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er staðsett í sameign hússins. Málað gólf.
Húsið að utan: Lítur vel út og virðist vera í góðu ásigkomulagi. Viðhaldslítið hús.
Lóðin: Er frágengin og vel hirt.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is