VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu raðhús við Bjarkarheiði 12, 810 Hveragerði.
Um er að ræða fjögurra herbergja parhús á einni hæð ásamt innbyggðum bílskúr.
Eignin er samtals 155,2m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Eignin telur forstofu, þrjú svefnherbergi, bjart alrými með eldhúsi og stofu, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Í bílskúr er vinnuherbergi með útgengi á baklóð, þá er einnig milliloft í bílskúrnum. Bílskúrinn er flísalagður.
Snyrtileg og falleg eign, miðsvæðis í Hveragerði. Eignin er steypt og steinuð að utan og stórt, hellulagt bílaplan.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Lýsing eignar:
Forstofa: flísalögð og þar er tvöfaldur fataskápur.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, upphengt wc, innrétting með handlaug og skápum, handklæðaofn, sturta og baðkar.
Svefnherbergi eru þrjú, öll parketlögð og með vönduðum fataskápum frá Axis.
Eldhús: er opið og bjart, með sérsmíðaðri innréttingu frá Axis. Efri og neðri skápar, eyja með helluborði, bakaofn í vinnu hæð, uppþvottavél og pláss fyrir ísskáp.
Alrýmið er rúmgott, parket á gólfi, upptekið loft og innbyggð lýsing.
Útgengt er úr stofu í garð og sólpall. Hluti af sólpalli er yfirbyggður.
Þvottahús: er milli íbúðar og bílskúrs. Þar er innrétting fyrir þvottavél og þurkara og skolvaskur.
Bílskúr er með flísum á gólfi, milliloft yfir hluta bílskúrs. Innst í bílskúrnum er vinnuherbergi með aðgengi út í garð.
Bílaplan er stórt og hellulagt. Fallegur gróður í garði og stór timburverönd, að hluta til yfirbyggð.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.