Fasteignaleitin
Skráð 17. sept. 2025
Deila eign
Deila

Framnesvegur 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
54.6 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
52.000.000 kr.
Fermetraverð
952.381 kr./m2
Fasteignamat
45.100.000 kr.
Brunabótamat
27.200.000 kr.
Mynd af Sigþór Bragason
Sigþór Bragason
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1924
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2000845
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
0
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Hitalagnir og ofnar endurnýjað
Raflagnir
Raflagnir og tafla endurnýjað
Frárennslislagnir
Endurnýjað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað
Lóð
19,96
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gimli fasteignasala og Sigþór Bragason lögg.fasteignasali sími 899 9787 kynna: Góð 54,6 m² tveggja herbergja íbúð með sérinngangi í gamla Vesturbænum. Stutt göngufæri í miðbæinn, verslanarir á Grandanum og alla þjónustu. Húsinu hefur verið vel við haldið.
 
Nánari lýsing:
Forstofa,  Sérinngangur og nýleg útidyrahurð, flísalagt gólf.
Stofa, harðparket á gólfi og tveir gluggar.
Svefnherbergi, er inn af stofunni og er rennihurð á því. Búið er að skipta herberginu upp með léttum vegg í tvö herbergi, harðparket er á gólfi og fataskápar. Gluggar eru í báðum rýmunum. Auðvelt að breyta til baka í eitt stórt herbergi.
Eldhús, með nýlegri innréttingu með góðu skápaplássi, hægt að hafa uppþvottavél eða þvottavél í eldhúsinnréttingunni.
Baðherbergi, Með hvítum neðri skáp og efri spegilskáp með ljósi. Flísar eru á gólfi og hluta veggja. Sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Allt endurnýjað árið 2024.
Geymsla, sér geymsla 2(m²) við hlið þvottahúss.
Þvottahús, sameiginlegt þvottahús sem gengið er inní frá bakgarði  
Garður, skjólsæll bakgarður sem er að mestu afgirtur.
 
Endurbætur
, að sögn seljanda hafa eftirfarandi endurbætur verið gerðar á síðustu árum::
2016 Frárennslislagnir endurnýjaðar
2017 Húsið málað   
2020 Ofnar og ofnalagnir endurnýjaðar
2022 Þakið endurnýjað 
2024 Nýtt rafmagn dregið og ný rafmagnstafla ásamt nýjum aðalrofa fyrir íbúðina. 
2024 Steinveggur  í garði viðarklæddur 
2024 Nýjar tröppur steyptar 
2024 Tvö ný opnanleg fög í stofuglugga og svefnherbergi.
.

Frábær staðsetning, húsið stendur við norðurenda Framnesvegar  í næsta nágrenni við alla verslun og þjónustu á Grandanum. Stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir við sjóinn.Vesturbæjarlaugin í næsta nágrenni. Stutt göngufæri við miðbæinn.
 
Þetta er björt og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð sem er í dag með tveimur svefnherbergjum sem auðvelt er að breyta til baka. Staðsetning mjög góð í gamla Vesturbænum. Eignin getur verið til afhendingar við kaupsamning.  
 . 
Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti á sb@gimli.is
 
Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 43 ára starfsafmæli á árinu 2025. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli gerir betur...

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/11/202336.350.000 kr.42.000.000 kr.54.6 m2769.230 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hverfisgata 82
Skoða eignina Hverfisgata 82
Hverfisgata 82
101 Reykjavík
49.7 m2
Fjölbýlishús
211
1056 þ.kr./m2
52.500.000 kr.
Skoða eignina Bræðraborgarstígur 32
IMG_2732.JPG
Bræðraborgarstígur 32
101 Reykjavík
47.9 m2
Fjölbýlishús
211
1104 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Asparfell 12
Skoða eignina Asparfell 12
Asparfell 12
111 Reykjavík
71.5 m2
Fjölbýlishús
211
740 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Bríetartún 10
Opið hús:20. sept. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Bríetartún 10
Bríetartún 10
105 Reykjavík
50.4 m2
Fjölbýlishús
211
990 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin