Fasteignaleitin
Skráð 8. okt. 2026

Selholt 10

Jörð/LóðHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
1 m2
1 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
33.000.000 kr.
Fermetraverð
33.000.000 kr./m2
Brunabótamat
1 kr.
Byggt 2026
Fasteignanúmer
68700010
Húsgerð
Jörð/Lóð
Úthlutun og sala byggingaréttar lóða í Hnoðraholti suður - Háholtið. Garðabær í samstarfi við Mikluborg fasteignasölu hefur hafið úthlutun á einbýlis- og raðhúsalóðum í næsta hluta Hnoðraholts í Garðabæ. Um er ræða suðurhlíðina með útsýni yfir GKG golfvöllinn og Heiðmörk. Frábærar lóðir í suðurhlíð

NÁNARI LÝSING: Selholt 10 er einbýlishúsalóð fyrir hús á tveimur hæðum sem má að hámarki vera 360 fm að flatarmáli. Lóðin er 574 fm og er lóðin neðan götu með , ofan götu við opið svæði norðan og vestanmegin við húsið. Lágmarksboð er kr 30.000.000.- og skal skila inn tilboðum eigi síðar en til Fasteignasölunnar Mikluborgar fyrir kl 12:00 þann 30. október.


Ofan á kaupverð leggst gatnagerðargjald samkvæmt verðskrá Garðabæjar.


Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is


Úrdráttur úr úthlutunarskilmálum:

Tilboðsgjafar skulu uppfylla þau skilyrði sem tilgreind eru í 3. gr. í úthlutunarreglum Garðabæjar. Tilboðsgjafar þurfa að geta lagt fram eftirfarandi gögn um fjárhagsstöðu sína, fjármögnun lóðar og byggingarframkvæmda:


Lögaðilar A.

Lánsloforð eða fyrirvaralausa yfirlýsingu banka eða annars fjármálafyrirtækis um fjármögnun framkvæmda, þar með talið gjalda vegna lóðar, sem ber með sér að tilboðsgjafi geti staðið undir þeirri fjárfestingu sem áætluð er vegna byggingarframkvæmda og greiðslu tilboðsfjárhæðar.

B. Staðfesing frá viðkomandi innheimtuaðilum og lífeyrissjóðum á því að tilboðsgjafi sé ekki í vanskilum með opinber gjöld, skatta eða lífeyrissjóðsgjöld á tilboðsdegi.

C. Búsforræðisvottorð sem staðfesti að tilboðsgjafi sé ekki undir gjaldþrotaskiptum.

D. Yfirlýsingu um heimild til handa sveitarfélaginu till að fletta tillboðsgjafa upp í vanskilaskrá til að kanna hvort tilboðsgjafi hafi fengið heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamninga eða árangurslaust fjárnám hafi verið gert hjá honum á undanförnum þremur árum fyrir tilboðsdag.

E. Áritaða ársreikninga síðustu tveggja ára er sýni jákvæða eiginfjárstöðu.

F. Áskilnaður er um reynslu af byggingarframkvæmdum í tilviki tilboða í raðhúsa- og fjölbýlishúsalóðir.

Einstaklingar

A. Fyrirvaralaus yfirlýsing banka eða annars fjármálafyrirtækis um næga innstæðu á bankareikningi eða afdráttarlaust skuldbindandi lánsloforð um fjármögnun framkvæmda, þar með talið gjalda vegna lóðar, sem bera með sér að tilboðsgjafi geti staðið undir þeirri fjárfestingu sem áætluð er vegna byggingarframkvæmda og greiðslu tilboðsfjárhæðar. Í stað yfirlýsingar getur tilboðsgjafi lagt fram greiðslumat banka eða annarra fjármálafyrirtækja sem ber með sér að tilboðsgjafi geti staðið undir kostnaðinum.

B. Staðfesting frá innheimtumanni ríkissjóðs um að hvorki tilboðsgjafi né maki/sambúðaraðili séu í vanskilum með opinber gjöld á tilboðsdegi.


Reynist tilboðsgjafi ekki uppfylla skilyrði fyrir úthlutun lóðar samkvæmt framangreindu verður tilboði hafnað.


Gatnagerðargjöld

Gatnagerðargjöld af lóðunum eru samkvæmt gjaldskrá Garðabæjar sem gildir hverju sinni. Tilboðsgjafar gera tilboð í byggingarrétt lóðanna. Byggingarréttargjald innifelur ekki heimæðargjöld veitustofnana, byggingarleyfisgjald, skipulagsgjald, úttektargjöld og önnur slík gjöld. Lóðarhafi greiðir umrædd gjöld í samræmi við gjaldskrár sem gilda hverju sinni. Lágmarksgatnagerðargjöld af einbýlishúsum, par- og raðhúsum og fjölbýlishúsum:

Einbýlishús 240 fm kr. 11.683.402

Par- og raðhús 190 fm kr. 7.367.188

Viðbótargatnagerðargjöld eru greidd af umframfermetrum.

Ofangreindar fjárhæðir breytast í samræmi við byggingarvístölu m.v. grunnvísitölu í september 2026, 129,6 stig.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (3)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Maríugata 38
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:22. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Maríugata 38
Maríugata 38
210 Garðabær
121 m2
Fjölbýlishús
413
892 þ.kr./m2
107.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 11
Bílastæði
Opið hús:21. okt. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hafnarbraut 11
Hafnarbraut 11
200 Kópavogur
71 m2
Fjölbýlishús
211
914 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 24
Hleðslustöð
Opið hús:21. okt. kl 16:30-17:00
Urriðaholtsstræti 24
210 Garðabær
90,2 m2
Fjölbýlishús
32
886 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Auðnukór 9
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Auðnukór 9
Auðnukór 9
203 Kópavogur
445,8 m2
Einbýlishús
724
808 þ.kr./m2
360.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin