Hrafnkell og Atli á Lind kynna þessa fallegu og vel skipulögðu fjögurra herbergja íbúð á 1. hæð.
Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð á afar smekklegan máta. Sjá nánar neðar í lýsingu.
Eignin er endaíbúð og þá með gluggum á þrjá vegu. Opið eldhús á tvo vegur og mjög rúmgóð og björt stofa sem er samliggjandi borðstofu. Þetta er björt íbúð með stórum gluggum sem hleypa góðri birtu inn. Baðherbergið er með baðkari og walk-in sturtu. Þvottaaðstaða er innan íbúðar.
Stutt er í góð leiksvæði, skóla, verslun og þjónustu.
Nánari upplýsingar:
Hrafnkell Pálmi LGF. / 690 8236 / hrafnkell@fastlind.is
Atli Karl LGF. / 662 4252 / atli@fastlind.is Skipulag: komið er inn í anddyrið þar sem baðherbergið og eldhúsið eru á vinstri hönd. Stofa og borðstofa beint af augum og svefnherbergin til hægri.Nánari lýsing:Anddyrið er opið með parket á gólfi með góðum fatasápum.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu með miklu vinnurými og skápaplássi. Góður gluggi til suðurs og flæðandi parket á gólfi. Ofnar í góðri vinnuhæð.
Stofan og borðstofan mynda opið og bjart rými með stórum gluggum til suðurs og vesturs. Parket á gólfi og útgengt á góðar svalir til suðurs. Gluggar til suðurs og vesturs.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum. Upphengt salerni, góður vaskaskápur, walk-in sturta og baðkar. Þvottaaðstaða með rými fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi I er rúmgott með parket á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi og rými fyrir innfelldan fataskáp.
Svefnherbergi III er opið herbergi í núverandi mynd en mjög auðvelt að loka og gera hefðbundið herbergi.
Sér geymsla í kjallara 9,2 fm.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Við Jörfabakka 16 eru 6 íbúðir. Tilheyrir heildarhúsinu Jörfabakka 2-16.
Hlutfallstala í mhl. er 15,53% og heildarhúsi og lóð 1,84%.
Á lóðinni eru 59 bílastæði.
Íbúð merkt 102 á 1. hæð.
Ekki er lyfta í húsinu.
Endurnýjun:
Það sem var gert innan íbúðar:
Eftirfarandi var gert árið 2022: - Baðherbergi stækkað og endurskipulagt
- Nýjar flísar frá Birgison
- Blöndunartæki úr Tengi
- Baðkar frá Tengi
- Skipt um allar neysluvatnslagnir og frárennsli innan íbúðar
- Eldhús endurskipulagt. Ný innrétting úr IKEA. Ný heimilstæki, ofn, örbylgja, ísskápur, uppþvottavél, helluborð. Allt úr heimilstækjum. Ný blöndunartæki úr Tengi
- Skipt um allar neysluvatnslagnir og niðurföll innan íbúðar
- Gólfhiti settur í alla íbúðina
- Ofnar fjarlægðir
- Öll íbúð flotuð
- Nýtt parket úr Birgison
- Nýjar hurðar úr Birgison
- Milliherbergi opnað (auðvelt að loka aftur)
- Skipt um rafmagnstöflu
- Dregið nýtt rafmagn
- Loft tekið niður og einangrað á milli
- Innfelld ljós sett í (frá Johan Rönning)
- Nýjir skápar í svefnherbergi úr IKEA
Eftirfarandi var gert árið 2025:Endurbætur á ytra byrði:- Skipt um þak 2023
- Hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla sett á bílaplan árið 2025
Jörfabakki 16, 109 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 204-8286 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Jörfabakki 16 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-8286, birt stærð 98.1 fm.
-----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.