Miklaborg kynnir : Þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sér afnotarétti og heitum potti út af stofu. Anddyri, tvö svefnherbergi, alrými með eldhúsi og borðstofu/stofu og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla í sameign. Sérmerkt bílastæði
Nánari lýsing: Sérinngangur. Eldhús er með grárri innréttingu og kvartsborðplötu. Innbyggð uppþvottavél fylgir. Stofa er björt og með útgengi á sérafnotareit til vesturs með heitum potti. Svefnherbergi eru tvö. Þau eru bæði með góðum fataskápum. Rafstýrðar myrkvunargardínur í hjónaherbergi. Baðherbergi er með flísalagt gólf og veggi að hluta. Sér innrétting fyrir þvottavélog þurrkara. Sturtuklefi með hurð.
Gólfefni íbúðar er vinylparket. Íbúðinni fylgir sér 4.1 m2 geymsla, ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu. Bílastæði eru sérmerkt íbúðum en bílaplan er í óskiptri sameign. Þar eru 2 hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla.
Stutt er í alla þjónustu að Fitjum. Stapaskóli, einn glæsilegasti leik- og grunnskóli landsins er í þessu blómlega hverfi, steinsnar frá íbúðunum, Stutt er í ýmiss konar útivistarmöguleika.
Allar nánari upplýsingar gefur Stefán Jóhann Stefánsson lögg. fasteignasali í s. 659 2634 eða stefan@miklaborg.is
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
04/06/2021 | 1.750.000 kr. | 34.900.000 kr. | 74.7 m2 | 467.202 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
260 | 73.8 | 53,9 | ||
260 | 72.7 | 54 | ||
260 | 72.3 | 54 | ||
260 | 72.6 | 53,5 | ||
260 | 72.2 | 53,5 |