Fasteignaleitin
Skráð 8. apríl 2026

SPÁNAREIGNIR - Villamartin

RaðhúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
25.200.000 kr.
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
101070426
Landnúmer
0
Húsgerð
Raðhús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Þaksvalir
Upphitun
Kæling/Hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *GLÆSILEG EIGN SEM SNÝR Í SUÐUR* *SÓLRÍKAR ÞAKSVALIR OG STÆÐI Á LÓÐ* *SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR* *AFHENDIST MEÐ HÚSGÖGNUM* *FRÁBÆR STAÐSETNING Í GÖNGUFÆRI VIÐ VERSLANIR, VEITINGASTAÐI OG GOLF* *STUTT Í LA ZENIA BOULEVARD OG Á STRÖNDINA*

Bjart og vel skipulagt hús á frábærum stað í Villamartin. Tvö svefnherbergi og eitt baðherbergi með glugga. Eldhús og stofa í opnu björtu rými. Garðurinn snýr í suður og það er bílastæði á lóð. Stórar þaksvalir. Geymsla. Sameiginlegur sundlaugargarður. Göngufæri við golf, veitingastaði og verslanir, nokkra mín. keyrsla í La Zenia Boulevard og á ströndina. 

Nánari upplýsingar veitir Berta Hawkins, lögg. fasteignasali, í síma 0034 615112869 eða berta@spanareignir.is

Umhverfi: Villamartín er þéttbýli sem er þekkt fyrir kyrrð og nálægð við alla nauðsynlega þjónustu, svo sem verslunarsvæði, veitingastaði og íþróttaiðkun. Falleg hvít sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í  stuttu akstursfæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Alicante flugvöllur er í ca. 40 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Hér er tækifæri til að eignast hús á Spáni á góðu verði, sem nýtist vel til dvalar allt árið eða sem sumarleyfisstaður í sólinni, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.

Verð: 174.000 evrur eða 25.200.000 ISK (m.v. gengi 145)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 13%.

Eiginleikar: góð staðsetning, sér garður, suður, þaksvalir, sér inngangur, stæði á lóð, sameiginlegur sundlaugargarður,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
101070426

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Staðarbakki 4
Opið hús:15. apríl kl 17:30-18:00
Skoða eignina Staðarbakki 4
Staðarbakki 4
109 Reykjavík
162.5 m2
Raðhús
714
708 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Skoða eignina Öldugata 12 - 102
Öldugata 12 - 102
621 Dalvík
80 m2
Raðhús
312
624 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbraut 5d
Skoða eignina Heiðarbraut 5d
Heiðarbraut 5d
230 Reykjanesbær
175.2 m2
Raðhús
715
502 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Lerkidalur 18
Skoða eignina Lerkidalur 18
Lerkidalur 18
260 Reykjanesbær
104 m2
Raðhús
312
720 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin