Gimli fasteignasala kynnir: Bjarta og falleg þriggja herbergja 1 hæð í góðu þríbýlishúsi við Langholtsveg 90 í 104 Reykjavík. Íbúðin er laus við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veitir Daði Runólfsson löggiltur fasteignasali, s. 698-1164 tölvupóstur dr@gimli.is eða gimli@gimli.is
Eignin Langholtsvegur 90 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-0988, birt stærð 105.4 fm. Íbúðin er skráð 85,5 fm og bílskúrinn 19,9 fm.
Íbúðin skiptist í hol, tvö svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi. Í sameign í kjallara er sameiginlegt þvottahús, og sér köld geymsla.NÁNARI LÝSING: Íbúðin er mjög björt og staðsett á vinsælum stað rétt við Laugardalinn.
Hol og gengið úr því í allar vistarverur.
Eldhús með fallegri innréttingu frá 2020.
Stofan er rúmgóð og björt með fallegum gluggum.
Upprunalega er íbúðin skipulögð með 2 rúmgóðum stofum en búið er að stúka herbergi úr annarri stofunni, lítið mál að breyta því aftur í tvær stofur.
Svefnherbergin eru 2 og mjög rúmgóð. Skápar í öðru herberginu.
Útgengi er út á góðar svalir.
Baðherbergið er með góðri innréttingu, gluggi er á baðherbergi.
Öll gólf íbúðarinnar eru nýlega flotuð eins og sjá má á myndum af íbúðinni, nema harðparket á eldhúsi og flísar á baði.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara og köld sérgeymsla undir tröppum fylgir íbúðinni.
Bílskúrinn er timburskúr sem er ekki í góðu ástandi, nýttur sem geymsluskúr.
Góður möguleiki er að fá að byggja stærri skúr ef þessi yrði rifinn.
Skv upplýsingum eigenda var húsið málað 2022.
Skv. upplýsingum sem eru frá 2022 og fengnar eru skv. lýsingu á eigninni þegar hún var auglýst eru upplýsingar um að dren og klóak hafi verið endurnýjað 2021.Niðurlag:
Falleg vel skipulögð hæð í húsi sem stendur á stórri lóð í grónu og barnvænu umhverfi. Stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu og alla þá afþreyingu sem Laugardalurinn býður upp á. Húsgjöld íbúðarinnar eru kr. 25,600 og hluti af því er greitt í framkvæmdasjóð.
Nánari upplýsingar veitir: Daði Runólfsson löggiltur fasteignasali, s. 698-1164, tölvupóstur dr@gimli.is eða gimli@gimli.isGimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala