Fallega þriggja herbergja íbúð með sérinngangi og bílskúr, á frábærum stað í suðurhlíðum Kópavogs. Um er að ræða eign sem er skráð 116,5 fm og þar af er bílskúr skráður 26,3 fm. Íbúðin er á jarðhæð í góðu fjölbýli með sér verönd. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, geymslu og bílskúr. Fallegur garður á sumrin, verðlaunagarður. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu.
*** Sérinngangur***
*** Pallur***
*** Bílskúr***
Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir Símonarson löggiltur fasteignasali í síma 696-6580 eða thorgeir@palssonfasteignasala.isNánari lýsing: Forstofa: komið er inn í forstofu með forstofuskáp, marmaraflísar á gólfi.
Eldhús: eldhúsið er með hvítri sprautulakkaðri innréttingu og marmarastein á borði, Franke Kubus granítvaski. Gott skápapláss, gólfhiti, marmaraflísar á gólfi.
Stofa: Stofan er björt og góð með útgengi út á rúmgóða verönd með skjólvegg (séreign). Parket er á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með aðgengi út á verönd, góðir fataskápar.
Svefnherbergi: Með nýjum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með stórri (walk in) sturtu, upphengdu salerni, innréttingu með vask og tveim opnanlegum gluggum. Tengi fyrir þvottavél og hiti í gólfi.
Geymsla: Sér geymsla innan íbúðar með góðum hillum.
Sameign: Hjóla og vagnageymsla og sameiginlegt þvottahús.
Bílskúr: Sérstæður bílskúr fylgir eigninni skráður 26,3 fm. Bílskúrshurðaopnari, nýtt gler í bílskúrnum. Tengi fyrir vask.
Búið er að skipta um þrýstijafnara og öryggisloka á hitagrind fyrir bílskúranna.
Íbúðin er með nýjum ofnum og búið að endurnýja gler að mestu.
Niðurlag: Góð íbúð með bílskúr í suðurhlíðum Kópavogs þar sem stutt er í alla þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir Símonarson löggiltur fasteignasali í síma 696-6580 eða thorgeir@palssonfasteignasala.isFylgdu mér á Instagram og Facebook til að fá nýjustu upplýsingar um eignir til sölu og aðrar nytsamlegar upplýsingar um fasteignamarkaðinn. Vantar þig hjálp við að finna eign kíktu á https://verdmatfasteigna.is/vid-hjalpum-ther-ad-finna-draumaeignina/ Viltu vita hvers virði þín eign er ?
www.verdmatfasteigna.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra