Fasteignaleitin
Skráð 12. mars 2026

Seilugrandi 4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
110.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
76.900.000 kr.
Fermetraverð
695.298 kr./m2
Fasteignamat
74.150.000 kr.
Brunabótamat
49.330.000 kr.
Mynd af Aðalsteinn Bjarnason
Aðalsteinn Bjarnason
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2023870
Landnúmer
105749
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Upprunalegt - En endurnýjað að hluta tengt eldhúsi
Raflagnir
Endurnýjað að hluta í íbúð (2021)
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta (2022)
Þak
Endurnýjað að hluta (2023) - Þak, pappi og rennur að hluta.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Lóð
2,283
Upphitun
Hitaveita - Danfoss
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
YFIRSTANDANDI: Viðgerð á vegg við inngang á bílageymslu. Nýtt handrið verður sérsmíðað. - Hlutur íbúðar 150.000 kr., greitt af seljanda. --- VÆNTANLEGAR (ósamþykkt): Rætt um að endurnýja dyrasíma og rafmagnstöflu, en ekkert ákveðið.
Fasteignasalan TORG kynnir í sölu afar fallega 4 herbergja íbúð með sérinngang af svölum ásamt stæði í bílageymslu við Seilugranda 4 í vesturbæ Reykjavíkur. Um er að ræða afar sjarmerandi og vel skipulagða íbúð í rólegu barnvænu hverfi á þessum vinsæla stað í vesturbænum. Eignin skiptist í rúmgott alrými sem rúmar auðveldlega borðstofu og stofu og opið eldhús með útgengi á skjólgóðar suðursvalir, eldhús með góðu skápaplássi og fallegri innréttingu með eldunareyju, svo telur eignin baðherbergi með þvottaaðstöðu, þrjú svefnherbergi, forstofu og geymslu sem er mjög rúmgóð inn af sameignargangi niðri, ekki talin inn í heildarfermetra eignar. Íbúðinni fylgir vel staðsett bílastæði í bílageymslu skráð sem hlutdeild í bílageymslu og er talin í heildarfermetra (30,9 m2). Öllu þessu til viðbótar er staðsetningin og allt umhverfið í kring frábær fyrir unga fjölskýldu, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, hreyfingu, íþróttir og fleira. Hafið samband við Aðalstein Bjarnason lgf. í síma 773-3532 eða adalsteinn@fstorg.is fyrir nánari upplýsingar og skoðun.

Eignin Seilugrandi 4 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 202-3870, birt stærð 110.6 fm, ásamt bílastæði í bílageymslu. Þar af íbúð skráð 79,7 m2 og hlutdeild í bílageymslu skráð 30,9 m2.

Nánari lýsing og skipting eignarhluta:
Forstofa er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi er inn af forstofu með parket á gólfi. (var áður eldhús skv. teikningu)
Alrými sem rúmar vel bæði setustofu og borðstofu ásamt opnu eldhúsi með eldunareyju. Parketi á gólfi og útgengi á svalir.
Svalir eru afar hefðbundnar, skjólsælar og snúa í suður.
Eldhús er í alrými með fallega ljós sand/base litaða innréttingu með miklu skápa og skúffuplássi. Borðplötur með marmara áferð og hvítar subway flísar milli efri og neðri skápa. Skápar í efri og skúffur í neðri ásamt eldunareyju með hangandi gufugleypi. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur (í vegg) ásamt bökunarofni í vinnuhæð.
Baðherbergi er inn af alrými með nýlegum vaski, skáp og spegli. Baðkar er með handsturtu og skilrúmi með hertu gleri. Salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Baðherbergi er flísalagt hátt og lágt með ljósum flísum.
Hjónaherbergi (2) er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi (3) er með parket á gólfi og fataskáp.
Geymsla íbúðar er í kjallara í geymslugangi sameignar og nokkuð rúmgóð, ekki skráð inn í heildarfermetra, skv. HMS.
Sameign er öll snyrtileg og nýlegt teppi á stigagangi. Í sameign er einnig sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.
Bílastæði íbúðar í bílageymslu er vel staðsett og gengið beint frá svölum við inngang íbúðar niður í bílageymslu. 
Bílaplan er einnig við hliðina á húsi nr.2, með töluvert af bílastæðum.

Framkvæmdir undanfarin ár samkvæmt seljanda:
2021
- Ný eldhúsinnrétting sett ásamt tækjum.
2021 - Ný sér rafmagnstafla fyrir eldhústæki sett upp í eldhúsi.
2021 - Íbúð máluð og settir nýjir gólflistar
2022 - Stofugluggi - Endurnýjun á gleri og þéttilistum. - Aðrir gluggar yfirfarnir.
2023 - Þak - Klæðning, pappi og rennur á norðurhlið.
2024 - Ytra byrði - Húsið málað og múrviðgert (Múr og mál)
2024 - Forstofa (bíslag) við aðalinngang endurnýjað - Hurð, gluggar, gler og þak.

Allar nánari upplýsingar veita:
Aðalstein Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s.856-5858 / margret@fstorg.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/01/202041.250.000 kr.42.900.000 kr.110.6 m2387.884 kr.
12/03/201939.800.000 kr.42.900.000 kr.110.6 m2387.884 kr.
09/10/201320.950.000 kr.26.000.000 kr.110.6 m2235.081 kr.
18/05/200719.550.000 kr.21.300.000 kr.110.6 m2192.585 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1985
30.9 m2
Fasteignanúmer
2023870
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
09
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
4.180.000 kr.

Myndir (51)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fjöruklöpp 19
Opið hús:17. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Fjöruklöpp 19
Fjöruklöpp 19
250 Garður
101 m2
Parhús
413
623 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Ásabyggð 18
Bílskúr
Skoða eignina Ásabyggð 18
Ásabyggð 18
600 Akureyri
172.8 m2
Hæð
615
491 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V3 - íbúð 103
Opið hús:15. mars kl 12:30-13:00
Vesturvin V3 - íbúð 103
101 Reykjavík
65 m2
Fjölbýlishús
21
1042 þ.kr./m2
67.700.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V2 - íbúð 305
Bílastæði
Opið hús:15. mars kl 12:30-13:00
Vesturvin V2 - íbúð 305
101 Reykjavík
120.7 m2
Fjölbýlishús
312
1123 þ.kr./m2
135.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin