Hólmatún 9 íbúð 101, 600 Akureyri - Björt og vel skipulögð 3-4 herbergja íbúð á jarðhæð í Naustahverfi - Stærð 97,4m²
Eignin er staðsett á eftirsóttum stað í Naustahverfi þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, verslun og aðra helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, 888-6661, siggithrastar@kaupa.isÍbúðin er vel skipulögð og skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi og geymslu sem nýtt er sem þriðja svefnherbergi í dag og baðherbergi með þvottaaðstöðu,Forstofa flísalögð með góðum fataskáp.
Eldhús er með mjög rúmgóðri eikarinnrétting, bakarofn í vinnuhæð, helluborði, innbyggðum ísskáp sem og uppþvottavél. Stór gluggi til norðurs hleypir inn mikilli birtu. Flísar á gólfi
Stofa er í opnu rými með eldhúsi, þar er parket á gólfi og útgengt er úr stofu á steypta verönd.
Svefnherbergi eru skráð tvö, bæði eru með parketi á gólfum og góðu skápaplássi.
Geymsla er í dag nýtt sem svefnherbergi. Þar er parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi er rúmgott en þar er góð innrétting undir vask og önnur innrétting þar sem stæði er fyrir þvottavél og þurrkara. Walk-in sturta, upphengt salerni. Flísar á gólfi og veggjum. Opnanlegur gluggi.
Sameiginlegur garður er við húsið og eigninni fylgir
sérafnotaflötur sunnan við húsið, sem afmarkaður er á teikningum.
Annað:- Vel staðsett eign í Naustahverfi.
- Jarðhæð með útgengi á verönd.
- Sameiginleg geymsla undir stiga sem og á háalofti.
- Þrjú nýtanleg svefnherbergi.
- Múrviðgert og málað að utan sumarið 2026.
- Stutt í skóla, leikskóla og verslun.
Um er að ræða vel skipulagða fjölskylduíbúð á vinsælum stað þar sem sameinast gott aðgengi, hagkvæm nýting fermetra og fjölskylduvænt umhverfi.