BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HELGAFELL 4B, 700 Egilsstaðir. Þriggja herbergja parhúsaíbúð á með útsýni yfir Lagarfljótið. Smellið hér fyrir staðsetningu. Parhúsið er timburhús byggt árið 1988, 70.6 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Forstofa, stofa og borðstofa, eldhús, stofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Nánari lýsing: Forstofa er sameiginleg með hinni íbúðinni.
Stofa og borðstofa með harðparket á gólfi
.Eldhús er nýtt með Brúnás innréttingu, spanhelluborð, Samsung ofn í vinnuhæð, tækjaskápur, innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur og frystir.
Svefnherbergin eru tvö, harðparket á gólfum, engir fataskápar.
Baðherbergi, flísar á gólfi og á veggjum sturtuhorns, upphengt salerni, sturta og vaskinnrétting, handkæðaofn og gluggar.
Þvottahús og geymsla eru saman í rými, flísar á gólfi, gluggi.
Extra lofthæð u.þ.b. 2.68. Ljósleiðari er í eigninni. Gardínur í eldhúsi og stofu (dragalegar upp og niður ) fylgja.
Íbúðin var endurnýjuð að mestu leyti sumarið 2024, meðal annars var lagður gólfhiti í öll gólf nema á baðherbergi og forstofu. Öll gólf flotuð nema forstofa og baðherbergi. Lagt var 12mm harðparket á öll rými íbúðar nema baðherbergi og geymslu.
Allir veggir og loft málað. Nýjar innihurðar. Í eldhúsi var sett ný innrétting frá Brúnás ásamt nýjum tækjum. Nýir rofar og tenglar í alla íbúðina.
Baðherbergi var endurnýjað af fyrri eiganda fyrir u.þ.b. 5-6 árum.
Helgafell 4 er timburparhús á einni hæð. Tvær íbúðir eru í húsinu. Húsið er timburhús klætt að utan með liggjandi timburklæðningu, járn á þaki. Þakkantur að framanverðu var endurnýjaður 2024.
Húsið er upprunalega byggt sem atvinnuhúsnæði, en var breytt í íbúðarhús.
Lóð er sameiginleg fullfrágengin. Tvö bílastæði á lóð framan við eignina í austur fylgja. Sorptunnuskýli er við austurenda íbúðar.
Lóðin er sameiginleg 610,0 m² leigulóð í eigu Múlaþings.
Skráning eignarinnar í fasteignayfirliti HMS:
Fastanúmer 225-0937.Stærð: Íbúð 70.6 m².
Brunabótamat: 33.950.000 kr.
Fasteignamat: 31.650.000 kr.
Byggingarár:1988.
Byggingarefni: Timbur.