Fasteignaleitin
Skráð 20. maí 2026

Eyjafell 19

SumarhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær/Kjós-276
122.1 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
84.500.000 kr.
Fermetraverð
692.056 kr./m2
Fasteignamat
84.850.000 kr.
Brunabótamat
77.900.000 kr.
SG
Svan G Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Eignalisti
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2085834
Landnúmer
126012
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer íbúðar
010101
Vatnslagnir
Sjá upplýsingablað seljanda
Raflagnir
Sjá upplýsingablað seljanda
Svalir
0
Lóð
100.00
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg kynnir: Til sölu glæsilegt 122,1 fm heilsárs sumarhús á óviðjafnanlegum útsýnisstað í Kjósinni. Húsið var nýlega stækkað og endurnýjað að miklu leiti samhliða þeirri stækkun. Húsið skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús og búr/geymslu. Heitur pottur er á sólpalli við húsið og snjóbræðsla í bílastæði og gönguleið að húsinu. Um er að ræða eignarland með töluverðum trjágróðri og skemmtilegri útiaðstöðu.


Nánari staðsetning er hér


Bókið einkaskoðun hjá Svan Gunnar Sími 697 9300


Nánari lýsing: Bílastæði eru fyrir neðan hús og göngustígur er upp að húsinu sem stendur ofar á lóðinni, bílastæði og göngustígur að húsi er með snjóbræðslu. Komið inn á neðri hæð þar sem tekur við forstofa . Rúmgóð stofa með kamínu og eldhús með fallegri innréttingu. Inn af eldhúsi er rúmgott búr. Inn ganginn á hæðinni eru tvö góð svefnherbergi, þvottahús ásamt fallegu baðherbergi. Á baðherberginu er baðkar, innrétting og upphengt salerni. Útgengi er frá hæðinni út á sólpall bæði frá stofu og gangi þar sem herbergi og baðherbergi eru en heitur pottur er fyrir framan innganginn . Efri hæð með tengingu við stiga úr stofu, komið í rúmgóðan gang sem hægt væri að nota sem sjónvarpshol eða geymslu. Tvö góð svefnherbergi til sitt hvorra hliðanna en annað herbergið er opið í dag fram á gang. Á milli herbergjanna er baðherbergi , þar er innrétting og upphengt salerni, möguleiki er að setja upp sturtu þar sem tengingar eru til staðar. Húsið er stærra að gólffleti vegna þakhalla og er gólfflötur samkvæmt skráningartöflu 139,7 fm. Stór sólpallur er umhverfis húsið með heitum potti. Mjög gott útsýni er einnig frá húsinu.


Lóðin er eignarlóð og er 2.250 fm að stærð. Á lóðinni er töluverður trjágróður. grasflöt og góð útiaðstaða. Gróðurhús með matjurtargarði er þar ásamt hænsnakofa/geymslu og annar geymsluskúr er niður við bílastæðin. Hitaveita er í húsinu og búið að leggja grunnlögn fyrir ljósleiðara. Hleðslustöð fyrir rafbíla við bílastæði. Bílastæði eru rúmgóð með sorptunnuskýli. Eldiviðargeysmla á lóðinni. Geymslur undir sólpalli og undir eldri hlutanum af húsinu. Margir aðilar búa allt árið á svæðinu.


Upplýsingablað seljenda um ástand eignarinnar er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni.


Húsið hentar vel til búsetu allt árið um kring og nýtur fallegs útsýnis og gróins umhverfis. Einungis hálftíma keyrsla frá Mosfellsbæ.


Nánari upplýsingar veitir Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/05/201914.800.000 kr.17.000.000 kr.45.6 m2372.807 kr.
26/11/20086.980.000 kr.12.000.000 kr.45.6 m2263.157 kr.
27/03/20075.853.000 kr.12.500.000 kr.45.6 m2274.122 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (61)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skálabrekkugata 12
Skálabrekkugata 12
806 Selfoss
139.9 m2
Sumarhús
423
641 þ.kr./m2
89.700.000 kr.
Skoða eignina Ölver 27
Skoða eignina Ölver 27
Ölver 27
301 Akranes
87.1 m2
Sumarhús
514
646 þ.kr./m2
56.300.000 kr.
Skoða eignina Þverholt 7
Opið hús:14. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Þverholt 7
Þverholt 7
270 Mosfellsbær
100.2 m2
Fjölbýlishús
312
698 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Holtsflöt 4
Bílastæði
Skoða eignina Holtsflöt 4
Holtsflöt 4
300 Akranes
133.8 m2
Fjölbýlishús
413
573 þ.kr./m2
76.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin