RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Mikið uppgerð 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi á frábærum stað.
SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D HÉR
* Eldhús endurnýjað 2020
* Gólfefni 2020
* Baðherbergi 2020
* Innihurðir endurnýjaðar 2020 (allar nema ein)
* Eldhúsgluggar og gler 2019
* Rafmagnstafla 2019
* Ofnar yfirfarnir og settir hitastillar 2022
* Fasteignamat 2026 - 75.500.000 kr.
Nánari lýsing:Komið er inn um sérinngang í flísalagða
forstofu með opnu fatahengi.
Eldhúsið var endurnýjað 2020. Innréttingin er svört með hvítum flísum á milli skápa. Tveir ofnar eru í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Hol er frá inngangi að stofunni og er hægt að nýta það fyrir borðstofu eða sjónvarpshol.
Stofan er með stórum gluggum sem vísa út í bakgarðinn.
Herbergi 1 er við stofuna, parket á gólfi og stór fataskápur.
Við holið hjá anddyrinu er gengið niður 2 tröppur og eru þar 2 herbergi, geymsla, baðherbergi og þvottahús.
Herbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp.
Herbergi 3 er með parket á gólfi.
Baðherbergið var endurnýjað 2020. Efnið var keypt hjá Fríform og Húsasmiðjunni. Baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt klósett, rúmgóð innrétting.
Geymsla er við baðherbergið.
Þvottahúsið er rúmgott með málað gólf og hurð út.
Í sameign er hjólageymsla, inntök og rafmagnstafla.
* Skemmtilega skipulögð
* Leikskólar og skólar í nágrenninu
* Stutt í verslanir og ýmsa þjónustu
* Mjög vinsæl staðsetning
Húsið lítur vel út og virðist hafa fengið gott viðhald, aðkoma er hellulögð og garður er gróinn og snyrtilegur.
Góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla og skóla.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is