Lind fasteignasala og Páll Konráð kynna í einkasölu: Glæsilegt 197,7 fm parhús á tveimur hæðum (pöllum) með bílskúr við Hádegisskarð 5 í Skarðshlíðinni, Hafnarfirði.,
Eignin skiptist þannig að að íbúðarhlutinn er 171,1 fm og bílskúrinn 26,6 fm samtals 197,7 fm. (Skilast á Byggingarstigi 4)
Húsið skilast fullbúið að utan, fokhelt að innan og með grófjafnaðri lóð. (Byggingarstig 4 samkvæmt ÍST 51:2001) Sjá nánar um skil á skilalýsingu seljanda.
Nánari upplýsingar veitir Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali s. 820-9322, pall@fastlind.is
Arkitekt hússins er Kristinn Ragnarsson
Raflagnahönnuður: Lumex
Skipting eignar samkvæmt teikningu:
Efri hæð: Gert er ráð fyrir: Forstofu, geymslu, bílskúr, gestasnyrtingu, rúmgóðu alrými þar sem gert er ráð fyrir eldhúsi og stofu, útgengi út á svalir.
Neðri hæð: Gert er ráð fyrir: Þremur herbergjum og einnig 2 baðherbergjum, þar af er eitt inn af hjónaherbergi, inn af baðherbergi 2 er gert ráð fyrir þvottaherbergi. Útgengt frá gangi út, þar sem gert er ráð fyrir rúmgóðri verönd.
Nánari lýsing: Útveggir eru einangraðir að utan með 100 mm steinullareinangrun og klæddir með vandaðri álklæðningu eða flísar og timburklæðningu við innganga og svalir.
Viðsnúið þak með PWC dúk, farg ofan á þaki.
Allir gluggar eru verksmiðjuframleiddir úr áltré og glerjaðir með tvöföldu K-gleri, kemur frá BYKO.
Útihurðar verða úr áltré.
Eignin skilast fullbúin að utan, fokheld að innan og með grófjafnaðri lóð. Sjá nánar um skil á skilalýsingu seljanda.
Ath þrívíddarmyndir eru aðeins til viðmiðunar.
Frábær staðsetning í nýju og glæsilegu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Páll Konráð, löggiltur fasteignasali, sími 820-9322, pall@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.