Fasteignasalan TORG kynnir: Falleg og mikið endurnýju fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð með sér inngangi og sólpalli við Löngumýri 59. Eignin er skráð 97,2 fm og skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, búr, geymslu, eldhús og stofu með útgengi út á sólpall til suðurs. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0000 eða darri@fstorg.is
Nánar um eignina: Gengið er inn um
sér inngang og komið er inn í flísalagt anddyrir með fataskáp. Við tekur gangur sem liggur inn í eldhús og stofu. Á gangingum er smá innskot sem nýtist vel sem vinnuaðstaða.
Fyrsta herbergið til hægri þegar gengið er inn ganginn er
hjónaherbergið með stórum fataskápum og parketi á gólfi. Fyrsta herbergið til vinstri þegar gengið er inn ganginn er
barnaherbergi með fataskáp og parketi á gólfi. Næsta herbergi til hægri er
baðherbergið sem hefur allt verið endurnýjað með sömu flísum og eru í anddyrinu, upphengdu klósetti, sturtu, ljós grárri innréttingu, dökkri borðplötu og spegli með baklýsingu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í dökk grárri innréttingu á bakvið hurð þegar gengið er inn á baðherbergið. Næsta herbergi til vinstri er síðan
búr/geymsla en hún er gluggalaus. Búið er að bæta við einu litlu
barnaherbergi sem er ekki á teikningum en það er seinasta herbergið á hægri hönd þegar gengið er inn ganginn. Það herbergi er parketlagt og með glugga. Eldhús og stofa eru síðan í opnu rými endanum á íbúðinni.
Eldhúsið parketlagt er með nýlegri svartri IKEA innréttingu og viðar borðplötu. Flísar eru á vegg fyrir ofan vask.
Stofan er parketlögð með útgengi út á stóran sólpall með heitum potti og fallegri lýsingu í skjólveggjum. Einnig er 5,2 fm
geymsla í sameign sem tilheyrir íbúðinni ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Eignin var mikið endurnýjuð frá árunum 2017-2019, meðal annars nýjar innihurðar, nýtt gólfefni í forstofu ásamt nýjum fataskáp, nýtt parket, ný eldhúsinnrétting, baðherbergi endurnýjað, nýr fataskápur í hjónaherbergi, sólpallur stækkaður, gluggar málaðir og fl. Árið 2022 var íbúðin heil spörsluð (hraun fjarlægt) og heitum potti komið fyrir á sólpallinum.
Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0000 eða darri@fstorg.is