Fasteignaleitin
Skráð 14. okt. 2025
Deila eign
Deila

Grensásvegur 1D 501

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
160.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
189.000.000 kr.
Fermetraverð
1.179.775 kr./m2
Fasteignamat
106.000.000 kr.
Brunabótamat
98.200.000 kr.
Mynd af Jórunn Skúladóttir
Jórunn Skúladóttir
Lögg. fasteignasali
Byggt 2022
Þvottahús
Lyfta
Garður
Útsýni
Aðgengi fatl.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2514333
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Hæðir í húsi
5
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
þak svalir til suð-vesturs
Upphitun
gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Háborg fasteignasala ehf, Jórunn lögg.fasteignasali og Kristín Rós lögg. fasteignasali kynna Grensásvegur 1D, íbúð 501 í nýbygging í lyftuhúsi með bílakjallara. Glæsilega eign á 5.hæð (efstu hæð), stærð 160,2 fm, í 108 Reykjavík. Svalir á íbúðinni eru 39,3 fm eftir endilangri íbúðinni. Glæsilegt útsýni. Luxus íbúð þar sem vandað hefur verið til efnisvals, tækja og vinnu. Íbúðin afhendist með gólfefnum. Afhending eftir samkomulagi. 

Helstu kostir lúxus íbúðar eru:
  • Gólfhiti (hitastýring í íbúðunum)
  • Gólfsíðir gluggar í íbúðinni
  • Aukin lofthæð
  • Íbúðin glæsilega innréttuð með dökkum eikar lituðum forstofuskápum
  • Eldhúsinnréttingin er með dökk eikar lituð með hvítum skápum
  • Inngangshurð yfirfelld 260 cm hæð, innihurðir í 260 cm
  • Stærstur hluti innveggja Lemga léttsteypusteinum
  • Íbúðin skilast fullbúin með gólfefnum, parketi á gólfum Aroma D3882 10mm/1380/193
  • Á böðum (2) og þvottaherbergi eru gólf flísalögð með dökkum Amani Matt flísum 60x120cm.
  • Innfeld lýsing/ljós í loftum í stofum, eldhúsi, böðum og forstofu
  • Innfelld blöndunartæki á böðum og innfeld lýsing bak við spegil og í lofti
Um er að ræða fallega lúxus íbúð á efstu hæð á frábærum stað rétt við Laugardalinn. Stórar svalir til suð-vesturs að stærð 39,2 fm. Íbúðin skilast fullbúin, bara að flytja inn og njóta. 

Nánar um íbúðina 501: þegar komið er inn í íbúðina er góður forstofuskápur í forstofu sem er opin inn í hol. Úr holi er á hægri hönd svefnherbergin og baðherbergin. Glæsilega hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi innaf. Baðherbergið er útbúið með vönduðum tækjum og vandað hefur verið til efnisvals. Aukaherbergin tvö eru bæði björt og með góðum fataskápum. Úr öðru þeirra er útgengt út á þaksvalir sem snúa til suðvesturs. Auka baðherbergið er einnig á þessum gangi með innfeldum blöndunartækjum, sturtu og góðum snyrtiskáp undir handlagu með speglaskáp fyrir ofan. 

Frá holi til vinstri eru glæsileg alrými, þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja með suðvestur þaksvölum að stærð 39,3 fm. Eldhúsð er glæsilega innréttað með eyju sem hægt er að sitja við og búr innaf eldhúsi. Samliggjandi stofa og borðstofa, síðan rúmgott sjónvarpshol. 

Eigninni fylgir geymsla í kjallara stærð 10,3 fm. Aðgengi að bílakjallara.  

PANTIÐ SKOÐUN, erum til húsa að Grensásvegi 1. Sýnum með stuttum fyrirvara, Jórunn lögg.fasteignasali jorunn@haborg.is eða síma 845-8958 og Kristín Rós lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á kristin@haborg.is. 

Húsið Grensásvegur 1: er nýbygging og samanstendur af 5. stigahúsum rúmlega 180 íbúð, ásamt verslunarhúsnæði á 1.hæð. Í stigagangi G1A eru 42. íbúðir. Bílakjallari á 3.hæðum sem nýtist öllum íbúðum ef vill, gegn vægu gjaldi. Kostnaður á hverja klukkustund virka daga er kr 250- frá kl 8:00-18:00, á virkum dögum er kr 150-. frá kl 18:00-8:00. En um helgar er kr 120- á klukkustund. Sjá má á heimasíðu www.parka.is nánari upplýsingar um áskriftir.

Húsfélag: Í húsinu er starfrækt húsfélag, það er rekstrarfélag sem sér um utanumhalið. Ekki eru fyrirhugaðar eða yfirstandandi framkvæmdir á vegum húsfélags.

Um er að ræða glæsilega íbúð með þaksvölum með útsýni, hjónasvíta með baðherbergi, auka baðherbergi, gott birtuflæði, gólfhita, aukin lofthæð, loftgæði góð, innbyggð lýsing og afhendist fullbúin með gólfefnum. Einstök staðsetning miðsvæðis þar sem stutt er í alla þjónustu og Laugardalinn.

Deilibílar. Stefnt er að því að deilibílar verði hluti af nýtískulegu og vistvænu umhverfi á Grensásvegi 1. Þeir verða aðgengilegir fyrir íbúa og starfsfólk fyrirtækja á lóðinni. Fyrirkomulag liggur ekki endanlega fyrir, en markmiðið er leigufyrirkomulag þar sem einfalt app verður notað fyrir aðgengi að bílunum og mögulegir notendur líklega forskráðir.

Lóðin: falleg hönnun á lóðinni þar sem fallegur garður og gott aðgengi fyrir alla er til að njóta saman. Snjóbræðsla undir helstu göngustígum. 

Nánari upplýsingar veita Jórunn Skúladóttir lögg. fasteignasali, í síma 845-8958, eða tölvupóstur jorunn@haborg.is og Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á kristin@haborg.is. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/05/20228.430.000 kr.90.000.000 kr.160.2 m2561.797 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Búland 15
IMG_2926.JPG
Skoða eignina Búland 15
Búland 15
108 Reykjavík
211.9 m2
Raðhús
623
864 þ.kr./m2
183.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 28
Bílastæði
Skoða eignina Fossvogsvegur 28
Fossvogsvegur 28
108 Reykjavík
170.5 m2
Fjölbýlishús
413
1202 þ.kr./m2
205.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 20
Bílastæði
Skoða eignina Fossvogsvegur 20
Fossvogsvegur 20
108 Reykjavík
170.7 m2
Fjölbýlishús
413
1201 þ.kr./m2
205.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 12
Bílastæði
Skoða eignina Fossvogsvegur 12
Fossvogsvegur 12
108 Reykjavík
169.8 m2
Fjölbýlishús
413
1207 þ.kr./m2
205.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin