Fasteignaleitin
Skráð 14. ágúst 2026

Engjaþing 21

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
152.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
689.678 kr./m2
Fasteignamat
95.800.000 kr.
Brunabótamat
77.250.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2008
2. hæð af 3
Garður
Svalir
Pallur
Bílskúr
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2302185
Landnúmer
202721
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt (2008)
Raflagnir
Upprunalegt (2008)
Frárennslislagnir
Upprunalegt (2008)
Gluggar / Gler
Upprunalegt (2008)
Þak
Upprunalegt (2008)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já suðaustur svalir
Lóð
5,51
Upphitun
Hitaveita og ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Margrét Rós, lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu einstaklega fallega og vel skipulagða 3ja herbergja útsýnisíbúð með sérinngangi og bílskúr við Engjaþing 21 í Kópavogi. Íbúðin skiptist í forstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og opið og rúmgott alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Frá stofu er útgengt á rúmgóðar suð-austur svalir og frá bakhlið íbúðar er útgengt á skjólgóða og afgirta timburverönd sem snýr vel til sólar. Eigninni fylgir einnig mjög rúmgóður 33,5 m² bílskúr og stór 15,6 m² geymsla. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** 

Íbúðin er björt og rúmgóð með aukinni lofthæð. Stórir gluggar í alrými hleypa mikilli birtu inn og þaðan nýtur fallegs og víðáttumikils útsýnis. Stórar suðaustur svalir eru að framanverðu og skjólgóðri 24,5 m² timburverönd aftan við húsið sem snýr í vestur. Staðsetning er góð í Þingunum í Kópavogi þar sem stutt er í verslun og þjónustu ásamt fallegum göngu- og útivistarsvæðum um Heiðmörk og kringum Elliðavatn.

Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 152,1 m², þar af er íbúðin sjálf 103,0 m², geymsla 15,6 m² og bílskúr 33,5 m².

Nánari lýsing eignar
Forstofa: Sérinngangur inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Alrými: Eldhús, borðstofa og stofa eru samliggjandi í björtu og rúmgóðu alrými, með aukinni lofthæð og stórum gluggum.
Eldhús: Opið við stofu með parket á gólfi, viðarinnréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi, innbyggðri uppþvottavél og stórri eyju með helluborði og háfi. 
Stofa og borðstofa: Rúmgóðar með fallegu útsýni og parket á gólfi. Frá stofu er útgengt á góðar 10 m² svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi. Útgengt á skjólgóða og afgirta timburverönd.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með baðkari, sér sturtu, upphengdu salerni og góðri innréttingu við vask.
Þvottahús: Sér þvottahús innan íbúðar.
Svalir: Rúmgóðar 10 m² svalir með útgengi frá stofu og fallegu, víðáttumiklu útsýni.
Timburverönd: Rúmgóð, skjólgóð og afgirt 24,5 m² timburverönd aftan við húsið sem snýr vel til sólar.
Geymsla: Stór 15,6 m² geymsla inn af bílskúr.
Bílskúr: Mjög rúmgóður 33,5 m² bílskúr með sjálfvirkum hurðaopnara og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. 

Staðsetning
Eignin er staðsett á góðum og fjölskylduvænum stað í Þingunum í Kópavogi. Stutt er í leik- og grunnskóla, leikskóla, verslun og þjónustu ásamt íþrótta- og útivistarsvæðum. Fallegar göngu- og hjólaleiðir eru í næsta nágrenni og svæðið býður upp á góða tengingu við náttúru og útivist.

Einstaklega falleg og rúmgóð 3ja herbergja útsýnisíbúð með sérinngangi, aukinni lofthæð, rúmgóðum svölum, skjólgóðri timburverönd, stórri geymslu og mjög rúmgóðum bílskúr á góðum stað í Þingunum í Kópavogi.

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/04/201112.200.000 kr.28.200.000 kr.152.1 m2185.404 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2008
33.5 m2
Fasteignanúmer
2302185
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.850.000 kr.

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þorraholt 1B Þakíbúð
Bílastæði
Efsta hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Þorraholt 1B Þakíbúð
210 Garðabær
165.2 m2
Fjölbýlishús
423
1198 þ.kr./m2
197.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 5 (420)
Bílskúr
Bílastæði
Fálkahlíð 5 (420)
102 Reykjavík
163.5 m2
Fjölbýlishús
413
856 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 7 (203)
Bílastæði
Hraungata 7 (203)
210 Garðabær
116.4 m2
Fjölbýlishús
32
996 þ.kr./m2
115.900.000 kr.
Skoða eignina Þrastartjörn 38
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:17. ágúst kl 18:30-19:00
Þrastartjörn 38
260 Reykjanesbær
138.5 m2
Raðhús
513
632 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin