Fasteignaleitin
Skráð 9. apríl 2026

Þorraholt 1B

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
165.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
129.100.000 kr.
Brunabótamat
109.650.000 kr.
Mynd af Þórunn Pálsdóttir
Þórunn Pálsdóttir
Lögg. fasteignasali
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2533224
Landnúmer
234793
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
þaksvalir
Inngangur
Sameiginlegur
Háborg og Þórunn Páls lgf. kynna með stolti  glæsilega 4ra herbergja þakíbúð með stórbrotnu útsýni og 30 fm þaksvölum með heitum potti.  Óhindrað útsýni til vesturs, suðurs og norðurs. Sérmerkt stæði í bílageymslu  og 1,5 fm útigeymsla til viðbótar við birt flatarmál.   Aukin lofthæð og frábært skipulag.  Tvö baðherbergi og þrjú svefnherbergi. Stórt alrými og gólfsíðir gluggar eftir vesturhlið. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf. s:773-6000 og thorunn@haborg.is.
Sérlega vegleg eign með aukinni lofthæð, sér loftræsikerfi fyrir íbúðina, gólfhita og sérmerktu stæði í bílageymslu með rafhleðslustöð.


Þorraholt 1 er nýtt  glæsilegt 49 íbúða álklætt fjölbýlishús hannað af Hjalta Brynjarssyni og teymi hjá Nordic Office of Architecture.  Húsið var byggt árið 2025 af  Reir verk  ehf.sem hefur getið sér gott orð fyrir vönduð vinnubrögð.

Komið er í rúmgóða forstofu með góðum skápum. Á vinstri hönd er gott herbergi með fataskápum.  Forstofan opnast í stórglæsilegt 66,9 fm alrými með stórbrotnu útsýni til vesturs, suðurs og norðurs,  að Snæfellsjökli, til sjávar og fjalla.  Sólarlagið hér svíkur engan.  
Eldhúsið er glæsilegt með innbyggðum  ísskáp og frystiskáp frá Siemens ásamt spanhelluborði í eyjunni sem er vegleg tæpir 2,5 m að lengd með góðu rými fyrir barstóla. Helluborðið er innfellt í borðplötu og eldhúsvaskur er undirlímdur.
Stórir gólfsíðir gluggar eru á stórum hluta vesturhliðarinnar þannig að útsýni er frábært úr alrýminu.  Það opnast á tveimur stöðum út á þaksvalirnar sem eru 30 fm  með sama magnaða útsýninu.  Þar er glænýr glæsilegur saltvatnspottur með 40 nuddstútum  og  1,5 fm útigeymsla  sem er til viðbótarvið birt flatarmál.  Innst í alrýminu er stúkuð af falleg sjónvarpsstofa.   Til vinstri  er glæsileg hjónasvíta með rúmgóðu baðherbergi með sturtu og opnanlegum glugga og góðum fataskápum eftir heilum vegg.  Við hliðina er þvottahús með opnanlegum glugga og góðum innréttingum fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Til hægri þegar komið er úr forstofu er annað herbergi með skápum  og við hlið þess rúmgott og fallegt baðherbergi með sturtu og opnanlegum glugga.
Vandað harðparket er á öllum rýmum nema flísar á baðherbergjum og þvottahúsi. Flísar á baðherbergjum eru í hólf og gólf.
Innréttingar eru vandaðar og sérsmíðaðar, sjálfvirk ljós eru inni í fataskápum og quartz steinn í borðplötum í eldhúsi og á baði.
Á jarðhæð fremst á gangi er 7,3 fm geymsla íbúðarinnar,  en þakíbúðin sjálf er 157.9 fm og birt flatarmál er samtals 165,2 fm.
Sérmerkt stæði í bílageymslu er á jarðhæð ásamt sameiginlegri hjólageymslu.
Eignin   er sérlega vel staðsett, stutt frá stofnæðum og  fjölbreyttri verslun og þjónustu í Smáralind og í Garðabæ.  Nálægð við náttúruna í Heiðmörk og Vífilsstaðavöllur í bakgarðinum ásamt fleiri golfvöllum í nágrenninu.
Einstök þakíbúð í Garðabæ með mögnuðu útsýni.

Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@haborg.is


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/06/202586.350.000 kr.183.000.000 kr.165.2 m21.107.748 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2533224
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
0
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.800.000 kr.

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hólatún 12
Opið hús:16. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hólatún 12
Hólatún 12
600 Akureyri
99 m2
Fjölbýlishús
413
736 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Sunnusmári 5
Bílastæði
Skoða eignina Sunnusmári 5
Sunnusmári 5
201 Kópavogur
101.4 m2
Fjölbýlishús
312
817 þ.kr./m2
82.800.000 kr.
Skoða eignina Skólabraut 7
Skoða eignina Skólabraut 7
Skólabraut 7
260 Reykjanesbær
113 m2
Fjölbýlishús
413
601 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Þorraholt 19b 303
Bílastæði
Þorraholt 19b 303
210 Garðabær
148.3 m2
Fjölbýlishús
323
876 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin