Fasteignaleitin
Skráð 29. mars 2026

Langabrekka 35

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
153.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
977.184 kr./m2
Fasteignamat
113.250.000 kr.
Brunabótamat
74.000.000 kr.
Mynd af Hafþór Örn Guðjónsson
Hafþór Örn Guðjónsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2063737
Landnúmer
115387
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjað 2022
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Í lagi skv. seljanda
Þak
Skipt um járn 2019
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita/gólfhit að hluta
Inngangur
Sérinngangur
Lind fasteignasala og Hafþór Örn lgf kynna fallegt, vel skipulagt og mikið endurnýjað 4ra herbergja einbýlishús á einni hæð með sérstæðum bílskúr við Löngubrekku 35 Kópavogi.
Gróinn fallegur garður er umhverfis húsið með hellulagðri suður verönd ásamt viðarskjólveggjum

Nánari upplýsingar veitir Hafþór Örn, löggiltur fasteignasali, S: 699-4040, hafthor@fastlind.is


Skv. fmr er eignin 153,4 fm. Íbúð 119,6 og bílskúr 33,8 fm.

Vandað einbýli sem hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, en aðeins hafa verið 3 eigendur á húsinu frá upphafi. Rafmagnsgardínur eru í öllu húsinu og einnig er hátalarakerfi.
Búið er að sækja um stækkun á bílskúr og að setja staðsteyptan vegg á lóðarmörkum til að jafna garðinn og er það í grenndarkynningu núna. Sjá hér

Skipulag eignar:
Forstofa, eldhús, borðstofa og stofa, þvottahús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, svefnherbergjagangur, innaf þvottahúsi er minna herbergi/geymsla. Bílskúr með hellulagðri innkeyrslu. Hitabræðsla er í stétt fyrir framan bílskúr. Geymsluloft er yfir íbúðinni.

Nánari lýsing á eign:
Tveir inngangar eru í húsið, annar á hliðinni bílskúrsmegin og síðan að framanverðu þar sem tröppur liggja upp að inngangi. Tröppur næst inngangi og stigapallur er með hálkuvörn.

Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu. Rúmgóður fataskápur með rennihurðum, Gólfhiti.
Herbergi I: Er inn af forstofu. Bjart og rúmgott. Harðparket á gólfi.
Stofa/ borðstofa: Björt með gluggum á tvo vegu, út úr stofu er gengið út á hellulagða suðurverönd og garð. Inndraganleg markísa er á húsinu yfir hluta verandarinnar.
Eldhús: Er með sérsmíðari innréttingu. Granít borðplata, tveir Miele ofnar, annar er gufuofn,spanhelluborð. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Borðkrókur. harðparket á gólfi. Gólfhiti.
Þvottahús: Tengi fyrr þvottavél og þurrkara, niðurfall, hitaveituelement hússins er þar. Hægt að ganga inn í húsið gegnum þvottahúsið.
Minna herbergi/geymsla: Er inn af þvottahúsi, nýtt í dag sem vinnustofa en var áður nýtt sem matarbúr.
Herbergisgangur: Með rúmgóðum skáp með rennihurðum og spegli. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og upp á veggi. Innrétting undir handlaug. Kringlóttur spegill. Opnanlegur gluggi. Innfelld blöndunartæki í sturtu. Upphengt salerni. Gólfhiti.
Herbergi II: Bjart og rúmgott, Fataskápur, harðparket á gólfi.
Herbergi III: Bjart og stórt, með góðum fataskáp. Harðparket á gólfi.
Bílskúr: Sérstæður efst á lóðinni, innkeyrsla upphituð framan hans. Hitaveita, rafmagn og vatn. Rafknúinn bílskúrsopnari. Útidyrahurð er á hlið bílskúrs og gluggar.
Lóðin: Er gróin og snyrtileg. Skemmtileg hönnun þar sem hellum, verönd, grasi og gróðri er blandað saman.

Nýlegar framkvæmdir skv. Seljanda
Búið er að setja rafmagns gardínur í allt húsið ásamt Sonos hljóðkerfi, s.s. hátalari í hverju herbergi og einnig búið að setja hátalar úti við verönd.
2022: Veggnir brotnir niður og alrýmið stækkað,allt gólfefni tekið, gólf flotað upp á nýtt og ný gólfefni lögð, allt rafmagn endurnýjað, ný rafmagnstafla og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl sett upp.
2019: Bárujárn á þaki endurnýjað og allir ofnar í húsinu endurnýjaðir.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: 
Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn .

Nánari upplýsingar veitir Hafþór Örn, löggiltur fasteignasali, S: 699-4040, hafthor@fastlind.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/11/202064.200.000 kr.79.800.000 kr.153.4 m2520.208 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1969
33.8 m2
Fasteignanúmer
2063737
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.300.000 kr.

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Miðgarður 11
Bílskúr
Skoða eignina Miðgarður 11
Miðgarður 11
230 Reykjanesbær
304.3 m2
Einbýlishús
813
490 þ.kr./m2
149.000.000 kr.
Skoða eignina Hraunbrún 13
3D Sýn
Skoða eignina Hraunbrún 13
Hraunbrún 13
220 Hafnarfjörður
220.2 m2
Einbýlishús
826
703 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Skoða eignina Álfhólsvegur 99
Opið hús:30. mars kl 17:00-17:30
Álfhólsvegur 99
200 Kópavogur
100.3 m2
Fjölbýlishús
413
773 þ.kr./m2
77.500.000 kr.
Skoða eignina Skerplugata 9
Tvær aukaíbúðir
Skoða eignina Skerplugata 9
Skerplugata 9
102 Reykjavík
260.6 m2
Einbýlishús
935
901 þ.kr./m2
234.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin