Fasteignaleitin
Opið hús:29. júní kl 16:00-16:30
Skráð 24. júní 2025
Deila eign
Deila

Hjarðarhagi 36

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
125.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
718.051 kr./m2
Fasteignamat
83.600.000 kr.
Brunabótamat
53.200.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1956
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2028348
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir að hluta
Þak
Endurnýjað 2013
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Opið hús - Hjarðarhagi 36 Reykjavík - sunnudaginn 29. júní klukkan 16:00 - 16:30

--- Afar falleg 3-4ra herb. útsýnisíbúð með bílskúr! ---

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallega 125,2 fermetra 3ja-4ra herbergja íbúð á 4. hæð með bílskúr (24,0 fermetrar) og svölum til suðausturs við Hjarðarhaga 36 í Reykjavík. Íbúðin er vel staðsett á suðvestursenda hússins (með glugga á þrjár hliðar) og því afar björt. Stofa er stór með gluggum til suðausturs sem nýtur mikillar birtu. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni í dag og möguleiki er að bæta við fjórða svefnherberginu (á kostnað hluta stofu). Útgengi á suðaustursvalir sem snúa inn í bakgarð hússins. 


Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á smekklegan hátt m.a. gólfefni, eldhús, baðherbergi, hurðar og skápar. Að sögn eiganda lauk umfangsmiklum utanhússviðviðgerðum á húsinu árið 2013. Steypuviðgerðir og viðgerðir á klæðningu, skipt um glugga og gert við eftir þörfum, þakkantur var endursteyptur og þak endurnýjað, dren endurnýjað og skólplagnir út frá húsinu, snjóbræðsla lögð og stétt endurnýjuð. Í sameigninni á Hjarðarhaga 36 var svo rafmagnstafla og raflagnir endurnýjaðar fyrir nokkrum árum. 

Glæsilegt útsýni m.a. sjávar- og fjallasýn. Íbúðin skiptist þannig: Samliggjandi stofur, eldhús, tvö herbergi, baðherbergi og hol. Auk þess fylgir geymsla með glugga í risi (hægt að nýta sem skrifstofu) og sér geymsla í kjallara. Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi er í kjallara. Stór gróin lóð með leiktækjum. 

Um er að ræða frábæra staðsetningu við Hjarðarhaga í Reykjavík þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu (Melabúðin, Pizza107, Brauð&Co, Kaffi Vest, Hagavagninn o.s.frv.). Fallegar göngu- og hjólaleiðir við sjóinn. Íþróttasvæði og sundlaug í næsta nágrenni. Leikskóli og grunnskóli í göngufjarlægð. Eftirsóttur staður í Vesturbænum.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með harðparketi og skápum.
Stofa: Er stór með með harðparketi á gólfum og góðum gluggum til suðausturs (verið að skipta um svalahurð og glugga við svalahurð). Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Afar fallegt útsýni út á sundin, til fjalla, yfir höfuðborgarsvæðið og að Hallgrímskirkju. Útgengi á svalir frá stofu.
Svalir: Snúa til suðausturs inn í bakgarð hússins. Glæsilegt útsýni líkt og að ofan greinir.
Eldhús: Með flísum á gólfi. Falleg eldhúsinnrétting með flísum á milli skápa. Stál Whirlpool bakaraofn, keramik helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Borðkrókur og gluggar til vesturs og suðurs (búið að endurnýja glugga við borðkrók).
Hjónaherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi og góðum skápum. Gluggar til suðurs og austurs (nýlegir gluggar) og innfelld lýsing í lofti.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til vesturs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með innb. sturtutækjum og glugga til vesturs. Handklæðaofn, skápar, upphengt salerni og innb. blöndunartæki við vask. 

Bílskúr: Er 24,0 fermetrar að stærð. Inngangshurð og bílskúrshurð.

Geymsla I: Er staðsett í risi hússins. Möguleiki að nýta t.d. sem skrifstofu. Hluti undir súð. Parket á gólfi og þakgluggi.
Geymsla II/geymsluskápur: Er staðsett í kjallara með hillum.
Sameiginlegt þvottaherbergi: Er staðsett í kjallara. Snyrtilegt með máluðu gólfi. sér tenglar fyrir íbúðir.
Sameiginlegt þurrkherbergi: Er staðsett í kjallara. Málað gólf, vinnuborð, vaskur, þvottasnúrur og gluggar til vesturs.
Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett í sameign.

Nánari upplýsingar:
Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali / heimir@fastlind.is / 849-0672
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/10/202154.350.000 kr.58.000.000 kr.125.2 m2463.258 kr.
17/02/201427.550.000 kr.38.500.000 kr.125.2 m2307.507 kr.
20/12/201326.050.000 kr.39.000.000 kr.125.2 m2311.501 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1968
24 m2
Fasteignanúmer
2028348
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
11
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.100.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skeljagrandi 1
Bílskúr
Skoða eignina Skeljagrandi 1
Skeljagrandi 1
107 Reykjavík
127.9 m2
Fjölbýlishús
413
687 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Grandavegur 43
3D Sýn
Bílskúr
Opið hús:01. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Grandavegur 43
Grandavegur 43
107 Reykjavík
117.2 m2
Fjölbýlishús
413
764 þ.kr./m2
89.500.000 kr.
Skoða eignina Skeljagrandi 3
3D Sýn
Skoða eignina Skeljagrandi 3
Skeljagrandi 3
107 Reykjavík
128.5 m2
Fjölbýlishús
413
698 þ.kr./m2
89.700.000 kr.
Skoða eignina Arkarvogur 1 - íbúð 404
Bílastæði
Arkarvogur 1 - íbúð 404
104 Reykjavík
111.4 m2
Fjölbýlishús
413
843 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin