Fasteignaleitin
Skráð 3. júlí 2026

Baldursgata 6A

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
71.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
71.900.000 kr.
Fermetraverð
1.004.190 kr./m2
Fasteignamat
65.450.000 kr.
Brunabótamat
39.500.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2007373
Landnúmer
102184
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
2024 - skipt um vatns- og fráveitulagnir og lagnagrind endurnýjuð.
Raflagnir
Endurnýjað að hluta.
Frárennslislagnir
2024 - skipt um vatns- og fráveitulagnir og lagnagrind endurnýjuð.
Gluggar / Gler
Upprunalegir. Komin móða á milli glerja
Þak
2022 - smá viðgerð á þaki (samskeytum okkar húss og hornhússins fyrir ofan)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Magnús Már Lúðvíksson og Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu: 

Vel skipulögð og flott þriggja herbergja 71,6 fm. íbúð á 1. hæð sem hefur verið mikið endurnýjuð, staðsett við Baldurgötu 6A, 101 Reykjavík, þar af er geymsla í kjallara 7,3 fm.

Árið 2022 voru gólfefni, eldhús innrétting, eldhústæki, fataskápar og baðherbergi í íbúðinni endurnýjað. 

Um er að ræða steinsteypt þriggja íbúða hús með kjallara sem hefur m.a snyrtilegt og rúmgott sameiginlegt þvottahús. 

Upplýsingar um helstu framkvæmdir húsfélagsins undanfarin ár: 
2019 - stigahús. Nýr gólfdúkur og stigahús málað.
2020 - ný útihurð og nýr dyrasími
2022 - smá viðgerð á þaki (samskeytum okkar húss og hornhússins fyrir ofan)
2024 - skipt um vatns og fráveitulagnir og lagnagrind endurnýjuð.

Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is

Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D

Nánari lýsing: 
Íbúðin er á fyrstu hæð, nokkur þrep upp frá inngangi inn í sameiginlegan snyrtilegan stigagang með þrem íbúðum. 
Komið er inn í hol með parket á gólfi sem flæðir um öll rými íbúðar að undanskildu baðherbergi, þar eru flísar á gólfi. 
Opið alrými er með borðstofu og stofu með glugga sem vísar í bakgarðinn. Eldhús er með glugga sem vísar út á Baldursgötu. Innrétting er mjög hugguleg á móti hvor annari, gott skápa, vinnu- og borðpláss. Innbyggður ískápur með frystir og innbyggð uppþvottavél. Bökunarofn og helluborð. Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð. Hvítir fataskápar í öðru þeirra. Annað herbergið snýr út að Baldursgötu en hitt að bakgarðinum.
Sér geymsla íbúðar er svo í kjallara hússins ásamt sameiginlegu þvottahúsi. 

Frekari upplýsingar veitir Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 699-2010 eða maggi@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/08/202242.550.000 kr.58.000.000 kr.71.6 m2810.055 kr.
07/07/201421.350.000 kr.28.000.000 kr.71.6 m2391.061 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bolholt 7
Bílastæði
Opið hús:14. júlí kl 16:00-16:30
Skoða eignina Bolholt 7
Bolholt 7
105 Reykjavík
68.2 m2
Fjölbýlishús
211
1114 þ.kr./m2
76.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 7
Bílastæði
Opið hús:14. júlí kl 16:00-16:30
Skoða eignina Bolholt 7
Bolholt 7
105 Reykjavík
60.3 m2
Fjölbýlishús
211
1211 þ.kr./m2
73.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 7
Bílastæði
Opið hús:14. júlí kl 16:00-16:30
Skoða eignina Bolholt 7
Bolholt 7
105 Reykjavík
62.1 m2
Fjölbýlishús
211
1143 þ.kr./m2
71.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 7
Bílastæði
Opið hús:14. júlí kl 16:00-16:30
Skoða eignina Bolholt 7
Bolholt 7
105 Reykjavík
68.3 m2
Fjölbýlishús
211
1069 þ.kr./m2
73.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin