LIND fasteignasala og Arinbjörn Marinósson, löggiltur fasteignasali, kynna bjart og rúmgott 3 herbergja 96.6 fm raðhús við Smyrlaheiði 3 í Hveragerði.
Eignin er á einni hæð með aukinni lofthæð, gólfsíðum gluggum og stæði í bílageymslu. Eldhúsið var endurnýjað árið 2021 ásamt gardínum úr Álnabæ. Útgengt er úr stofu á lokaða verönd.
Fasteignamat 2026 kr. 64.750.000-.
*** Sérbýli á einni hæð ***
*** Aukin lofthæð**
*** Bílastæði í bílakjallara***
*** Gólfsíðir gluggar ***
*** Afgirtur sólpallur ***
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu. Henni fylgir einnig stæði í bílageymslu.
Nánari upplýsingar veitir Arinbjörn Marinósson í síma 822-8574 eða á netfangið arinbjorn@fastlind.is
Gott aðgengi er að húsinu og er snjóbræðsla í hellulögn fyrir framan húsið ásamt bílastæði beint fyrir framan innganginn. Í miðju íbúakjarnans er samkomuhús sem er í eigu íbúanna sjálfra, þar hafa eigendur aðgang að vel búnum veilsusal, kaffistofu og samverustað.
Íbúð er 89,3 fm (merkt 01-0103) og geymsla er 7,3 fm (merkt 11-0041) samtals er eignin skráð 96,6 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.
Nánari lýsing:
Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskápum. Inn af forstofu er mjög rúmgott hjónaherbergi á vinstri hönd með miklu skápaplássi, lítilli geymslu með hillum, rúmgóður sólbekkur og skápar undir sólbekk. Þegar komið er út úr svefnherbergi er baðherbergi á vinstri hönd. Baðherbergið er með flísum á gólfi ásamt flísum á hluta veggja, upphengt wc, handklæðaofn, sturtuklefi og skápar yfir og undir vask, einnig er tengi fyrir þvottavél í skáp á baðherbergi. Stofa er með parket á gólfi og þaðan er útgengt á lokaðan vesturpall með hliði, ásamt litlum skúr. Eldhús er með parketi á gólfi, hvítri innréttingu úr Fríform með granítplötu á borði, flísar á einum vegg og gler á öðrum vegg. Parket er á öllum rýmum utan baðherbergi sem er flísalagt.
Bílastæði er í snyrtilegum bílakjallara með þvottaaðstöðu. Geymslan sem fylgir eigninni er fyrir framan bílastæðið. Hjóla- og vagnageymsla í sameign í bílageymslu ásamt dekkjageymslu.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.