Fasteignaleitin
Skráð 17. feb. 2026

Hlíðarhjalli 2

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
254.9 m2
6 Herb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
170.850.000 kr.
Brunabótamat
130.350.000 kr.
Friðrik Þ Stefánsson
lögmaður og lögg.fs.
https://miklaborg.isEignalisti
Garður
Fasteignanúmer
2061719
Landnúmer
114673
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
010101
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Svalir
1
Lóð
100.00
Upphitun
Hitaveita
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg kynnir: Tækifæri til makaskipta. Seljandi tilbúinn í skipti á minni eignum. 254,9 fm einbýlishús á tveimur hæðum með 2 auka útleigueiningum og innbyggðum bílskúr í neðstu húsaröð í suðurhlíðum Kópavogs. 2 aukaíbúðir eru í húsinu.. Tvö svefnherbergi en gætu verið amk. fjögur. Stór stofa mót suðri og sólstofa / arinstofa, ásamt sólríkum suðursvölum. Nýtt járn er á þaki og klætt kringum skorstein. Tilboð óskast

Stór timburverönd sunnan við húsið og fallega hirtur garður. Mikil veðursæld og fallegt útsýni.

Aflið upplýsinga og pantið skoðun hjá Friðrik í S. 616 1313

NÁNARI LÝSING: Komið er inn í forstofu sem stúkuð er af með hleðslugleri og gengið áfram inn í hol. Þar eru snyrting og þvottahús á á vinstri hönd og er útgengi í bílskúr í gegnum þvottahús. Á hægri hönd er lítill gangur með búri / geymslu sem leiðir inn í eldhús sem opið er inn í borðstofu. Borðstofa og stór stofa eru í alrými og stórir bjartir gluggar mót suðri. Útgengi á stórar svalir mót suðri úr borðstofu. Við enda stofu er arinn og þar inn af arinstofa / sólastofa með útgengi á svarnar sem eru um 30 fermetrar og liggja með mest allri suðurhlið húss. Gengið niður steyptan stiga á neðri hæð. Upphaflega ver gert ráð fyrir gosbrunni í stigaopinu og eru lagnir til staðar.

Á neðri hæð er lítið hol og þaðan er útgengi út á stóra suðurverönd og skjólsælann vel hirtann suður garð. Á neðri hæðinni er hjónasvíta með baðherbergi, þar sem bæði er hornbaðkar og sturta. Þar er einnig fataherbergi. Á móti er svefnherbergi sem hefur verið opnað og er í dag notað sem skrifstofa. Á jarðhæðinni hafa verið stúkaðar af 2 stúdíóíbúðir með snyrtingum og eldhúskrókum. Þær geta skapað góða tekjumöguleika en auðveldlega má fjölga svefnherbergjum í 4 - 5. Herbergjaskipan er því ekki í samræmi við samþykktar teikningar. Bílskúr er um 30 fm. og með rafmagnsopnun og flísalögðu gólfi.. Milliloft er í bílskúr að hluta og 3ja fasa rafmagn.

GÓLFEFNI á báðum hæðum eru flísar, parket. og náttúrusteinn.

Að sögn eiganda hefur húsið fengið ýmisllegt viðhald. og vísast til Upplýsiingablaðs seljanda varðandi það. Að innan er húsið mikið upprunalegt en skipt hefur bverið um meirihluta ofna í húsinu. Gólfhiti er í forstofu, sólstofu og í hjónaherbergi. Nýtt járn er á þaki og klætt kringum skorstein. Eigandi skoðar skipti á minni eignum / íbúðum

Allar upplýsingar veitir Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lögg.fasts. í s. 616 1313 eða fridrik@miklaborg.is


Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (70)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skerpluholt 5
Bílskúr
Skoða eignina Skerpluholt 5
Skerpluholt 5
210 Garðabær
240 m2
Einbýlishús
523
956 þ.kr./m2
229.500.000 kr.
Skoða eignina Austurkór 30
Bílskúr
Skoða eignina Austurkór 30
Austurkór 30
203 Kópavogur
247.4 m2
Einbýlishús
725
806 þ.kr./m2
199.500.000 kr.
Skoða eignina Hryggjarás 30
Bílskúr
Skoða eignina Hryggjarás 30
Hryggjarás 30
221 Hafnarfjörður
272.2 m2
Einbýlishús
825
514 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Tunguvegur 62
Skoða eignina Tunguvegur 62
Tunguvegur 62
108 Reykjavík
106.9 m2
Raðhús
413
747 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin