Fasteignaleitin
Skráð 19. feb. 2026

Hraunbær 151

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
108.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
87.900.000 kr.
Fermetraverð
813.136 kr./m2
Fasteignamat
79.700.000 kr.
Brunabótamat
68.400.000 kr.
Mynd af Aðalsteinn Bjarnason
Aðalsteinn Bjarnason
Löggiltur fasteignasali
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2516305
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
07
Vatnslagnir
Upprunalegt (2023)
Raflagnir
Upprunalegt (2023)
Frárennslislagnir
Upprunalegt (2023)
Gluggar / Gler
Ál/tré gluggar - Upprunalegt (2023)
Þak
Upprunalegt (2023)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Rúmgóðar - Suður
Lóð
1,81
Upphitun
Hitaveita - Danfoss
Inngangur
Tveir inngangar
*** EIGNIN ER SELD, MEÐ FYRIRVARA ***

Fasteignasalan TORG kynnir í sölu afar bjarta og rúmgóða 4 herbergja íbúð í nýlegu og viðhaldsléttu lyftufjölbýli við Hraunbæ 151 (Bæjarháls megin).
Eignin er skráð í heildina 108,1 m2 að stærð ásamt geymslu á jarðhæð. Vandaðar innréttingar (HTH) og tæki (AEG) frá Ormsson. Gólfefni frá Ebson. Gluggartjöld frá Sólargluggatjöldum. Blöndunartæki frá Tengi. Eignin skiptist í anddyri með skápum, herbergjagang, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með gólfsturtu og þvottaaðstöðu, rúmgott alrými sem rúmar stofu, borðstofu og opið eldhús, en svo eru einnig rúmgóðar svalir til suðurs. Fallegt útsýni er úr íbúðinni og fjallasýn frá suð-austri til suð-vesturs. Staðsetningin er frábær þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni, þ.m.t. verslanir, heilsugæsla, skólar, leikskólar, líkamsrækt, sund ofl. Hafið samband við Aðalstein Bjarna lgf. í síma 773-3532 eða adalsteinn@fstorg.is fyrir nánari upplýsingar og skoðun.

Eignin Hraunbær 151 er skráð sem hér segir hjá fasteignaskrá HMS: Eign 251-6305, birt stærð 108.1 fm.

Nánari lýsing og skipting eignarhluta:
Forstofa er með fallegu harðparketi og vönduðum fataskáp sem innfelldur er í vegg og nær upp í loft.
Gangur er þægilega breiður og liggur inn í alrými með fallegu harðparketi.
Svefnherbergi (1) með fallegu harðparketi og góðum glugga.
Svefnherbergi (2) með fallegu harðparketi og góðum glugga.
Baðherbergi er með snyrtilega og stílhreina innréttingu með vaskskáp og veggskáp með speglahurðum. Rúmgóð gólfsturta (walk-in) og skilrúm úr stóru hertu gleri ásamt vegghengdu salerni og handklæðaofni á vegg. Ráð er gert fyrir þvottavél í vinnuhæð með neðri skáp/skúffu fyrir neðan og borðplötu fyrir ofan, þar sem eru snúrur, en líka hægt að setja þurrkara. Vandaðar flísar á gólfi og veggjum við sturtu og salerni.
Rúmgott og bjart alrými er við enda á gangi, sem rúmar vel eldhús borðstofu og setustofu. Fallegt harðparket á gólfi.
Eldhús er opið og með fallegri L-laga innréttingu með nægu skúffu og skápaplássi. Innréttingin er afar smekkleg í fallegum í ljósum beige / sandlit og með borðplötu í mildum ljósum tón. Á milli efri og neðri skápa er gluggi með opnanlegu fagi sem hleypir morgunbirtunni inn.
Nægt pláss er fyrir borstofu og veglegt borðstofuborð við eldhús og útgengi er á svalir við glugga.
Svalir eru nokkuð rúmgóðar og djúpar með útsýni yfir Árbæ og sjá má fjallagarðinn í fjarska.
Stofan er rúmgóð og gæti rúmað bæði sjónvarpshol og setustofu.
Hjónaherbergi er inn af stofu og er rúmgott með glugga á tvo vegu, fallegu harðparketi og vönduðum fataskápum.
Sameignin er öll snyrtileg með lyftu og teppalögðum stigagangi, ásamt myndavélasíma og sjálfvirkri hurðaopnun í anddyri. Vélrænt loftræstikerfi er í húsinu og íbúðum með útsogi og ferskloftsventlum.
Á lóðinni eru bílastæðaplön sunnan og norðan megin við húsið. Grunnkerfi fyrir rafbílahleðslu. Lýsing er við gönguleiðir á lóð og bílastæði. Snjóbræðsla er í göngustétt og áætlað er að leiksvæði sé í húsasundi á milli húsa.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/01/202471.550.000 kr.79.400.000 kr.108.1 m2734.505 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Brattahlíð 3-0101
Bílskúr
Brattahlíð 3-0101
810 Hveragerði
140.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
43
641 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Lundarbrekka 16
Opið hús:15. mars kl 13:00-13:30
Skoða eignina Lundarbrekka 16
Lundarbrekka 16
200 Kópavogur
107.6 m2
Fjölbýlishús
514
716 þ.kr./m2
77.000.000 kr.
Skoða eignina Garðatorg 2
Bílastæði
Opið hús:15. mars kl 12:00-12:30
Skoða eignina Garðatorg 2
Garðatorg 2
210 Garðabær
143.3 m2
Fjölbýlishús
322
1011 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Báruklöpp 25
Opið hús:12. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Báruklöpp 25
Báruklöpp 25
250 Garður
105.9 m2
Raðhús
312
694 þ.kr./m2
73.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin