FS fasteignir – 571-9992Mýrartún 16 202, 600 AkureyriUm er að ræða notalega 97,4 m
2 3-4ra herbergja íbúð á 2. hæð í raðhúsi með yfirbyggðum svölum til suðurs.
Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, geymslu, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og hjónaherbergi.
Nánari lýsing:
- Forstofa er með ljósum flísum á gólfi, góður eikar fataskápur.
- Þvottahús er inn af forstofu, þar eru ljósar flísar á gólfi, eikar innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, opnanlegur gluggi í austur og vaskur.
- Geymsla er inn af forstofu, þar er harðparket á gólfi, opnanlegur gluggi til norðurs, geymslan gæti nýst sem svefnherbergi.
- Eldhús er í opnurými með stofu, þar eru dökkar flísar á gólfi, falleg eikarinnrétting með dökkri bekkplötu, innbyggð uppþvottavél og nýr bakaraofn í vinnuhæð,
- Svalir eru yfirbyggðar, gengið er í þær út frá eldhúsi.
- Stofa er með harðparketi á gólfi og góðum glugga til suðurs.
- Svefnherbergi er með harðparketi á gólfi, fataskáp og opnanlegum glugga til norðurs.
- Hjónaherbergi er með harðparketi á gólfi, góðum eikar fataskáp og opnanlegum glugga til norðurs og lokuðum hornglugga til vesturs.
- Baðherbergi er með ljósum flísum á gólfi og hluta veggja, góð eikar innrétting með dökkri bekkplötu, upphengt salerni, handklæðaofn og walk-in sturta.
Annað: - Sturta var sett í stað baðkars 2023.
- Ljósleiðari.
- Sameiginleg geymsla undir stiga.
Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða fsfasteignir@fsfasteignir.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.