Hannes Steindórsson kynnir:
Mikið endurnýjað einbýlishús með aukaíbúð á 1.556 fm eignarlóð með miklu útsýni.
Húsið er 253,7 fm á tveimur hæðum, þar af 40,4 fm bílskúr. Fimm svefnherbergi og 3ja herbergja aukaíbúð með sérinngangi úr forstofu. Frá 2021 hefur verið sett upp nýtt eldhús, baðherbergi og þvottahús á efri hæð, ný gólfefni, rafmagn í eldhúsi mikið uppfært og öllum rofum og tenglum skipt út, rafmagnstafla uppfærð í 3 fasa, nýr timburpallur smíðaður og svalir lagfærðar.
NEÐRI HÆÐForstofa: Rúmgóð forstofa með svörtum flísum og gólfhita (2025). Innrétting undir stiga og fatahengi með skóskápum á vegg.
Stigi: Parketlagður stigi upp á efri hæð.
Aukaíbúð (standsett 2020), innangengt úr forstofu og útgengt út í garð:Eldhús: Hvít innrétting með ofni, helluborði og viftu.
Stofa: Vínilparket á gólfi, útgengt á verönd.
Svefnherbergi 1: Vínilparket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Vínilparket á gólfi, hvítir skápar.
Baðherbergi: Hvít innrétting, baðkar og falleg handlaug. Tengi fyrir þvottavél.
Bílskúr: 40,4 fm, flísalagður, með góðum gluggum og breiðri innkeyrsluhurð.
EFRI HÆÐ
Björt alrými með aukinni lofthæð og miklu útsýni.Stofa: Rúmgóð stofa með vínilparketi, innfelldri lýsingu, stórum gluggum og miklu útsýni. Í stofunni er
arinn sem notalegt er að ylja sér við á kvöldin. Útgengt á svalir.
Borðstofa: Björt borðstofa með vínilparketi, samliggjandi stofu.
Sjónvarpsherbergi/svefnherbergi 3: Inn af stofu, vínilparket á gólfi. Svefnherbergi skv. teikningu og einfalt að stúka af.
Eldhús (2021): Ný hvít háglansinnrétting frá IKEA og dökkar flísar á gólfi. Rafmagn í eldhúsi var mikið uppfært þegar eldhúsið var gert upp.
Innbyggð uppþvottavél, spanhelluborð og innbyggður bæði ísskápur og frystiskápur. Ofn í vinnuhæð í innréttingu.
Svefnherbergisgangur: Vínilparket, afmarkaður með hurð.Baðherbergi 2 (2021): Endurnýjað frá grunni. Dökkar flísar á gólfi og hvítar á veggjum, sturta með mósaíkflísum og glerskilrúmi, handklæðaofn.
Svefnherbergi 4: Vínilparket á gólfi, hvítir skápar. Mikið skápapláss.
Svefnherbergi 5: Vínilparket á gólfi, hvítir skápar. Mikið skápapláss.
Þvottahús (2021): Flísalagt þvottahús með nýrri innréttingu og miklu skápaplássi. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Útgengt á pall.
Að utan.
Pallur: Nýr timburpallur með skjólveggjum framan við hús (2025–2026). Pallur ofan við hús var pússaður og borið á hann haustið 2026.
Svalir: Lagfærðar. Utanáliggjandi stigi fjarlægður og svalirnar færðar í upprunalegt horf.
Bílaplan: Stórt, hellulagt.
UMHVERFI.Hlíðarás var kosin best skreytta gatan á bæjarhátíðinni „Í túninu heima“ bæði 2025 og 2026, en hún er bleik gata. Í götunni er mikil og góð samstaða enda frábærir nágrannar.
ENDURBÆTUR.2020: Nýjar innihurðir. Aukaíbúð standsett með nýju eldhúsi, baði og vínilparketi. Skipt um alla ofnaloka.
2021: Nýtt eldhús, baðherbergi og þvottahús á efri hæð. Nýtt vínilparket á efri hæð. Rafmagn í eldhúsi mikið uppfært og öllum rofum og tenglum skipt út. Ný LED-lýsing, nýir fataskápar og myrkvunarstrimlar í gluggum.
2024: Rafmagnstafla uppfærð í 3 fasa.
2025: Gólfhiti og nýjar flísar í forstofu.
2025–2026: Nýr timburpallur með skjólveggjum. Svalir lagfærðar. Innrétting undir stiga.
Fylgir með: Öll innbyggð heimilistæki (ísskápur, frystiskápur, ofn, uppþvottavél og spanhelluborð), myrkvunarstrimlar og gardínur í gluggum.
Hleðslustöð: Leigð hleðslustöð fyrir rafbíl getur fylgt ef nýr eigandi tekur yfir leigusamninginn.
Fylgir ekki: Pergóla á palli.
Athugið: Nokkrir gluggar eru orðnir lélegir og þak er komið á tíma.
Allar upplýsingar veitir: Hannes Steindórsson hannes@fastlind.is