Hótel Þóristún (Thoristun Apartments)
Einstakt tækifæri til að eignast rótgróinn og vel rekinn gististað með rúmgóðum íbúðarhluta á einum fallegasta stað á Selfossi, við bakka Ölfusár.
Hér slóð á drónamyndband af eigninni.Til sölu er Hótel Þóristún, sem rekið er undir nafninu Thoristun Apartments á Booking.com. Gististaðurinn hefur verið byggður upp af metnaði frá árinu 2014 og nýtur afar góðs orðspors meðal ferðamanna.
Eignin býður upp á einstakan sveigjanleika og skiptist annars vegar í rúmgóðan íbúðarhluta, sem núverandi eigendur hafa nýtt sem einkabústað, og hins vegar Hótel Þóristún, sem í dag samanstendur af 4 herbergja íbúð og fjórum sjálfstæðum stúdíóíbúðum.
Íbúðarhlutinn býður einnig upp á möguleika á að stækka rekstur Hótel Þóristúns enn frekar, enda var hann áður nýttur til gistingar. Eignin hentar því jafnt þeim sem vilja sameina búsetu og atvinnurekstur sem og þeim sem vilja hámarka tekjumöguleika með auknu gistirými.
Íbúðarhluti (sérhæð og ris ca. 155 fm) Sérhæð - Anddyri, Hol , Svefnherbergi , Eldhús , Baðherbergi með sturtu , Borðstofa , Stofa , Sjónvarpshol
Ris - Fjögur svefnherbergi, Baðherbergi , Geymsla , Kalt geymsluloft yfir öllu risinu.
Á sérhæð hefur verið lagt fallegt parket og þar hafa eldhús og baðherbergi verið endurnýjuð á smekklegan hátt. Á efri hæð er einnig parket á gólfum en baðherbergið þar er upprunalegt.
Hótel Þóristún Íbúð (um 102 fm) Rúmgóð 4 herbergja íbúð á neðri hæð hússins sem er hluti af rekstri Hótel Þóristúns og leigð út til gesta.
Í íbúðinni eru: Stofa , Eldhús , Þrjú svefnherbergi ,Baðherbergi.
Þvottahús fyrir rekstur Hótel Þóristúns er einnig staðsett á neðri hæð hússins.
Fjórar sjálfstæðar stúdíóíbúðir Aftan við aðalhúsið stendur um 135 fm íbúðalengja með fjórum sjálfstæðum stúdíóíbúðum. Hver íbúð hefur sérinngang, sérverönd, eldhúsaðstöðu og baðherbergi. Allar íbúðirnar eru parketlagðar og hafa verið endurnýjaðar á síðustu árum.
Bílskúr Bílskúr er um 40 fm að stærð og er í dag nýttur sem geymsla.
Staðsetning Eignin stendur á einstaklega fallegum stað við bakka Ölfusár í Þóristúni á Selfossi. Á lóðinni eru næg bílastæði fyrir gesti.
Lóðin er skilgreind sem þjónustulóð samkvæmt gildandi deiliskipulagi og fullt rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II er til staðar. Þessi skipulagsskilyrði skapa traustan grundvöll fyrir áframhaldandi rekstri til framtíðar.
Rekstur Núverandi eigendur hafa rekið Hótel Þóristún frá árinu 2014 og byggt upp traustan og vinsælan gististað sem nýtur afar góðs orðspors.
Thoristun Apartments er með 9,4 í einkunn á Booking.com og um 600 umsagnir frá ánægðum gestum, auk fjölda jákvæðra umsagna á Google Reviews og Tripadvisor. Þessi árangur endurspeglar metnaðarfullan rekstur, framúrskarandi þjónustu og mikla ánægju gesta í gegnum árin.
Með kaupunum gefst einstakt tækifæri til að taka við fullmótuðum rekstri sem hefur verið byggður upp yfir áratug. Rekstrinum fylgir verðmæt viðskiptavild, sterkt orðspor, skráning og umsagnasaga á Booking.com undir nafninu Thoristun Apartments, ásamt Facebook-síðu, bókunarsíðum og öðrum rekstrargrunni sem nýr eigandi getur byggt áfram á.
Hvort sem nýr eigandi kýs að búa á staðnum og reka gististaðinn áfram eða nýta alla eignina til gistingar býður Hótel Þóristún upp á fjölbreytta möguleika og verulega tekju- og þróunarmöguleika til framtíðar.
Helstu kostir Rótgróinn gististaður í rekstri frá árinu 2014
Um 445 fm fasteign á þjónustulóð
5 fullbúnar gistieiningar í rekstri (4 stúdíóíbúðir og 4 herbergja íbúð)
Rúmgóður íbúðarhluti sem býður upp á möguleika á frekari uppbyggingu rekstrar
Einkunn 9,4 á Booking.com (Thoristun Apartments)
Fjöldi framúrskarandi umsagna á Booking, Google Reviews og Tripadvisor
Fullt rekstrarleyfi fyrir gististað (flokkur II)
Þjónustulóð samkvæmt deiliskipulagi sem tryggir traustar rekstrarforsendur til framtíðar
Vörumerki, bókunarsíður, vefsíða, rekstrarbúnaður og innbú geta fylgt með samkvæmt nánara samkomulagi
Næg bílastæði á lóð.
Fasteigna,- og brunabótamat.Fasteignamat 144.800.000,-
Brunabótamat 193.700.000,-
Stærðir:Gistieiningar í bakgarði 135.5fm
Hæð og ris - einbýlishús 155.6fm
Íbúðareining/kjallari - 102.8fm
Bílskúr - 40fm.
Heildarfjöldi fermetra 433,9fm
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar lögg.fasteigansali í síma 897-5930 eða siggifannar@eignaland.is