Fasteignaleitin
Skráð 15. apríl 2026

Kjalbraut Vaðnes 4

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
123.1 m2
4 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
82.000.000 kr.
Fermetraverð
666.125 kr./m2
Fasteignamat
78.500.000 kr.
Brunabótamat
70.250.000 kr.
JR
Jón Rafn Valdimarsson
löggiltur fasteignasali
Eignir í sölu
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2208389
Landnúmer
169780
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer íbúðar
010101
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Svalir
0
Lóð
100.00
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg kynnir: Glæsilegt sumarhús á 1 ha eignarlóð, á besta stað í landi Vaðness Grímsnesi. Heitt og kalt vatn


Húsið er staðsett við Kjalbraut sem er lítil gata með aðeins 15 húsum. Svæðið er gróðri vaxið og skjólsælt. Alls eru fjögur svefnherbergi í húsinu sem er skipt upp í aðalhús og gestaherbergi, hvort með baðherbergisaðstöðu.


Húsið var stækkað um meira en helming og endurnýjað að mestu ca árið 2008-9

Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn Valdimarsson, sími: 6955520, netfang: jon@miklaborg.is.


Nánari lýsing:

Komið er inn í forstofu með herbergjagang í beinu framhaldi þar sem eru tvö svefnherbergi, hvort herbergi um 7 fm að stærð. Baðherbergi er með upphengdri salernisskál og tengi fyrir þvottavél. Þar er sturtuklefi og vatnsheld Fibo klæðning á veggjum og flísar á gólfi. Alrými stofu og eldhúss er glæsilegt tæplega 60 fm rými en eldhúsinnrétting er með flísalögn á milli efri og neðri skápa og með eldhúseyju sem er færanleg. Stæði fyrir uppþvottavél í eldhúsi og háfur yfir helluborði. Stofan er hjarta hússins og rýmið einstaklega notalegt með góðri lofthæð, lýsingu og harðparket á gólfum. Útgengt er á viðarverönd. Í aftari enda hússins er gestarými með eldhúsaðstöðu, baðherbergi með sturtuklefa, góðu skápaplássi, Fibo klæðning á veggjum og flísalagt gólf. Tvö svefnherbergi eru í gestarými hússins og útgengt á viðarverönd. Yfir hluta hússins er svefnloft þar sem eru næg svefnpláss.


Stór viðarverönd er umhverfis húsið og þar er heitur pottur með skjólgirðingu. Sjálfstæð áhaldageymsla er til hliðar við húsið sem er ekki í uppgefnum fermetrum en einnig er lítil geymsla (inntak) áföst húsinu við innganginn. Umhverfið er ægifagurt með lágreistum birkigróðri og einnig hefur heimreið upp að húsi verið fagmannlega hellulögð og setur mikin svip. Næg bílastæði út við veg fyrir eigendur og gesti.


Sannkallað draumahús fjölskyldunnar á einu eftirsóttasta og kyrrlátasta sumarhúsasvæði Suðurlands. Stutt er á golfvelli Öndverðarness, Kiðjabergs, Hraunborga, Dalbúa og fleiri mætti telja upp. Aðeins um 15 mínútna akstur á Selfoss og svipað austur í Reykholt. Til stendur að fá læst hlið að götunni, bráðlega. Öflugt sumarhúsafélag tryggir viðhald götu og snjómoksturs yfir dimmustu mánuðina en húsið má auðveldlega nýta sem heilsárshús. Ársgjald í sumarhúsafélagið er 60 þúsund krónur


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mánatún 1 íb603
Bílastæði
Opið hús:23. apríl kl 13:30-14:00
Mánatún 1 íb603
105 Reykjavík
81.7 m2
Fjölbýlishús
211
917 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Laufásvegur 17
Skoða eignina Laufásvegur 17
Laufásvegur 17
101 Reykjavík
86.6 m2
Fjölbýlishús
211
784 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunberg 4
Skoða eignina Hraunberg 4
Hraunberg 4
111 Reykjavík
211.8 m2
Atvinnuhúsn.
4
325 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Tröllakór 8
Bílastæði
Skoða eignina Tröllakór 8
Tröllakór 8
203 Kópavogur
101.1 m2
Fjölbýlishús
312
780 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin