Fasteignaleitin
Skráð 2. maí 2025
Deila eign
Deila

Sigtún 30

EinbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
160.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
498.752 kr./m2
Fasteignamat
72.400.000 kr.
Brunabótamat
71.800.000 kr.
Mynd af Loftur Erlingsson
Loftur Erlingsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1972
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Gæludýr leyfð
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2187054
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Ágætt að mestu
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Stór pallur
Upphitun
Hitaveita/ofnar
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Raki í vegg á gangi og forstofu gengt sturtunni.
Loftur Erlingsson lögglitur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
160fm, 4herb. steinsteypt einbýlishús með bílskúr á stórri lóð á eftirsóttum stað á Selfossi. 
Einfalt að bæta einu svefnherbergi við - stór bílskúr - geymsluskúr og stór garður. 

Forstofa er flísalögð og gangur þar inn af sem nær eftir endilöngu húsinu. Til hægri eru svefnherbergi og baðherbergi en eldhús, stofa og þvottahús á vinstri hönd.  Upphaflega voru fjögur svefnherbergi í húsinu en búið er að taka niður vegg milli tveggja og útbúa eitt stærra úr þeim. Hjónaherbergið er í enda hússins, rúmgott og með ágætum eldri skápum, parket á gólfi. Annað minna herbergi við hlið þess einnig með fataskáp og parketi á gólfi.
Fyrrnefnt stærra herbergi þar framar og baðherbergið gengt því.  Það er flísalagt í hólf og gólf, handlaug á skáp, klósett og sturta fyrir innan, plastþil með rennihurð til varnar.
Stofan einnig parketlögð og dökkar þiljur í uppteknu lofti, gengt út á stóran pall úti fyrir.  Stílhrein innrétting með viðaráferð í eldhúsi, helluborð á lækkuðu borði, bakarofn í góðri hæð og töluvert borð- og skápapláss. Korkflísar á gólfi þar. Innaf eldhúsi er svo þvottahús með innréttingu og skolvaski og nýlegri hurð út í garð, ágæt geymsla með skápum og hillum þar við hliðina, flísar á gólfum beggja.  Ofnar hússins og lagnir að þeim voru endurnýjuð fyrir ca 20 árum.  
Bílskúrinn er vel stór eða 47fm, flísalagður og dálítið geymsluloft yfir hluta hans, töluvert að geymsluskápum og gott vinnuborð. Á framhlið eru göngudyr og innkeyrsludyr með rafopnun, en einnig gengt út í garð á bakhlið. 
Garðurinn er stór og tvö hávaxin grenitré setja svip sinn á hann.  Stór pallur næst húsinu, steyptur heitur pottur í óþekktu ástandi og óeinangraður geymsluskúr aftan við bílskúrinn. 
Húsið er staðsett miðsvæðis, í rólegri botnlangagötu og öll helsta þjónusta eins og skólar, verslun og sundlaug í þægilegu göngufæri. 

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565    loftur@husfasteign.is  

 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
 
Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. 


 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1972
47.1 m2
Fasteignanúmer
2187054
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.550.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Móstekkur 4
Skoða eignina Móstekkur 4
Móstekkur 4
800 Selfoss
133.6 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
598 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Grænamörk 2
Bílastæði
50 ára og eldri
Skoða eignina Grænamörk 2
Grænamörk 2
800 Selfoss
112.8 m2
Fjölbýlishús
312
717 þ.kr./m2
80.900.000 kr.
Skoða eignina Lóurimi 23
Bílskúr
Skoða eignina Lóurimi 23
Lóurimi 23
800 Selfoss
148.3 m2
Raðhús
413
512 þ.kr./m2
76.000.000 kr.
Skoða eignina Sóltún 20
Bílskúr
Skoða eignina Sóltún 20
Sóltún 20
800 Selfoss
159.5 m2
Parhús
413
520 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin