Prima fasteignasala og Haukur Páll Ægisson lgf. kynna í einkasölu, Glitvelli 27, 221 Hafnarfirði.
Um ræðir fimm herbergja einbýlishús í fallegu hverfi á Glitvöllum með stórri hellulagðri innkeyrslu og steyptu ruslatunnuskýli. Þakskyggni nær vel út í innkeyrsluna sem gerir það að verkum að það snjóar sjaldan eða aldrei á framrúðuna á bifreiðunum sem lagðar eru þar undir. Húsið er byggt úr timbri á steyptri plötu, klætt að utan með hallandi bárujárni og er skráð 237.5 fm þar af bílskúr 41.2 fm.
Eignin skiptist eftirfarandi.
Forstofa, stofa, fjögur svefnherbergi, hjónaherbergi með sturtu, salernis aðstöðu og rúmgóðu fataherbergi, sjónvarpsherbergi, baðherbergi, rúmgott þvottahús og rúmgóður bílskúr með breiðri bílskúrshurð. Sólpallur með heitum potti og geymsluskúr við bifreiðastæði.
Lýsing eignar.
Forstofa með flísum og fjórföldum fataskáp
Eldhús mjög rúmgott með fallegri hvítri innréttingu og stórri eyju með upphengdum háfi. Tveir bökunarofnar í vinnuhæð. Útgengt út á sólpall úr eldhúsi.
Rúmgóð og björt stofa ásamt borðstofu, gengið inn úr eldhúsi og gangi. Útgengt út úr borðstofu út á sólpall.
Sjónvarpshol inn af gangi.
Hjónaherbergi með sturtu og salernisaðstöðu ásamt fataherbergi með stórum skápum.
Þrjú önnur svefnherbergi.
Þvottahús með þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ásamt neðri og efri skápum. Einnig er upphengdur vaskur í þvottahúsinu.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, sturtu aðstöðu, tveimur vöskum og upphengdum speglaskáp.
Gegnheilt parket er á alrými og herbergjum. Flísar á forstofu, þvottahúsi og baðherbergjum. Bílskúr er með nýlegu epoxy.
Bílskúr er rúmgóður með breiðri innkeyrslu hurð. Upphengdur vaskur.
Bifreiðaplan hellulagt og er einstaklega stórt. Geymsluskúr við enda bifreiðaplans.
Stutt er í skóla, leikskóla og aðra þjónustu.
Virkilega falleg eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veita:
Haukur Páll Ægisson löggiltur fasteignasali / s.7729970 / haukurpall@primafasteignir.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.