Falleg og björt 5 herbergja miðhæð með sérinngangi auk 25,3 fm bílskúrs í góðu þríbýli við Rauðagerði 14. Stofurými stórt og bjart. Þvottahús er innan eignar með glugga. Einstaklega rúmgóð og vel skipulögð hæð sem hefur fengið gott viðhald og hefur verið töluvert endurnýjuð. Eignin er vel staðsett í grónu hverfi miðsvæðis í 108 Reykjavík í nánd við öll skólastig og þjónustu.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 158,1fm og þar af er bílskúr 25,3fm og geymsla 5,2fm.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi
Hol/gangur með þreföldum skáp og parketi á gólfi.
Eldhús er með endurnýjaðri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél, góðum borðkrók, ofn í vinnuhæð, spanhelluborð, gufugleypir og nýlegar korkflísar á gólfi. Búið er að loka með léttum vegg eldhúsi inn í borðstofu sbr. teikningu og auðvelt að opna aftur á milli.
Stofa björt og rúmgóð með stórum gluggum á tvo vegu og parketi á gólfi.
Borðstofa rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt er út á svalir sem vísa út í garð og eru til suðurs.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Útgengt er úr herberginu út á þak bílskúrsins í vesturátt.
Svefnherbergi II rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi III rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi með snyrtilegri innréttingu, glugga með opnanlegu fagi, baðkar með sturtuaðstöðu og flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús er innan íbúðar með innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gluggi með opnanlegu fagi og flísar á gólfi.
Bílskúrinn er með rafmagni, heitu- og köldu vatni. Tengi fyrir bílahleðslustöð er utan á bílskúrnum.
Sér geymsla er í sameign í kjallara hússins.
Þak og þakrennur endurnýjað árið 2024.
Húsið var sprunguviðgert og málað 2018.
Húsið hefur verið drenað í suður- og vesturátt og drenað var í kringum bílskúr 2018.
Skólplagnir voru fóðraðar 2020.
Allar nánari upplýsingar veitir Dana Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-1879 eða á netfanginu dana@trausti.is eða Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is.